„Ölduhæðin 10 metrar og djöflagangurinn engu líkur”
Vestmannaey Okt 22
Vestmannaey VE kemur til hafnar í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaey VE landaði í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær og Bergur VE landaði þar í dag. Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar í dag. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, talaði mest um veðrið.

„Það er ekki einleikið hvernig veðrið lætur við okkur þessa dagana. Það hefur í sannleika sagt verið djöfullegt. Janúar var í lagi veðurfarslega en febrúar var slæmur og þessir fyrstu dagar í mars hafa verið skelfilegir. Þegar við vorum á landleið var ölduhæðin 10 metrar og djöflagangurinn engu líkur. Þetta var stuttur túr hjá okkur. Við vorum að veiðum á Ingólfshöfða í tvo sólarhringa og fengum þar 60 tonn, mest ýsu. Svo gerðist það að allir skjár um borð duttu út og við urðum að koma okkur í land og láta lagfæra tölvukerfið og það gekk vel. Á þessum slóðum sem við vorum á er ekki jafnmikil fiskgegnd og í fyrra. Vertíðarfiskur er ekki kominn þarna. Líklega hefur loðnuleysið þessi áhrif,” sagði Egill Guðni. Vestmannaey hélt til veiða á ný í gær.

Jóni Valgeirssyni, skipstjóra á Bergi, var einnig tíðrætt um veðrið. „Við lönduðum á Djúpavogi sl. fimmtudag. Það var langmest ýsa sem fékkst á Ingólfshöfðanum. Það var þokkalegt veður í þeim túr. Síðan var haldið í Lónsbugtina og þá breyttist veðrið til hins verra. Sannleikurinn er sá að tíðarfarið hefur verið ógeðslegt að undanförnu. Í Lónsbugtinni fékkst skarkoli, þorskur og ýsa. Síðan var haldið á Ingólfshöfðann og þar fengum við þorsk í bölvaðri skítabrælu. Við erum svo að landa 63 tonnum í Eyjum í dag og erum fegnir að hvíla okkur á látunum,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.