Þetta hefur verið gert með sama hætti frá því árið 1985 og þannig fást sambærilegar upplýsingar um stofnstærð, aldurssamsetningu, fæðu, ástand og útbreiðslu helstu nytjastofna við landið. Jafnframt er fylgst með hitastigi sjávar og ýmsu fleiru, svo sem mengandi efnum í sjávarfangi.
Að sögn Magnúsar Ríkarðssonar, skipstjóra á gekk heilt yfir ljómandi vel.
,,Það reyndar byrjaði með foráttu brælu. Þess vegna var ákveðið að byrja fyrir austan. Venjulega byrjum við á að fara vestur úr. En núna náðum við að skipta og fara norðar og taka stöðvar fyrir Þórunni. Svo var algjör blíða seinni hlutann. Eftir að við komum vestur úr,” segir hann.
,,Við tókum reyndar fleiri stöðvar enn áður. Það kom til vegna seinkunar á komu nýja hafrannsóknaskipsins til landsins,” segir Magnús og á þarna við skipið Þórunni Þórðardóttur HF 300.
Magnús segir að þeir hafi bætt við sig 19 stöðvum til viðbótar. Þetta voru þá 173 stöðvar í allt. Við fórum alls 2490 sjómílur. Það er til samanburðar lengri vegalengd en héðan frá Eyjum til Tenerife. Spurður um hvað þetta hafi tekið langan tíma segir hann að þetta hafi verið 17 dagar.
Magnús tekur fram að það sé einkar gott samstarf við starfsmenn Hafró í þessum rannsóknum. Það voru sjö starfsmenn frá Hafró með og svo erum við 15 í áhöfn. Breki landaði tvívegis í Eyjum í þessu ralli.
En hvenær á svo að fara aftur á veiðar? Við erum bara að gera klárt hérna. Reiknum með að fara út á hádegi á morgun, segir Magnús að endingu.
Óskar Þór Kristjánsson var í brúnni á Þórunni í rallinu. Aðspurður um hvernig hafi gengið segir hann að gengið hafi vel. ,,Það var leiðindaveður þegar við lögðum í hann frá Eyjum. Svo var orðið ágætis veður sunnan við Neskaupstað. Við fórum norður með landinu. Svo var bætt við okkur 19 stöðvum. Við náðum alveg á Kolbeinseyjarhrygginn og fórum svo djúpslóðina til baka.”Svo var skítaveður úti fyrir Húsavík. ,,Það reyndar reddaðist þar sem við vorum í skjóli. Við lönduðum svo á Neskaupstað á mánudaginn fyrir viku. Svo var farið suður úr á Þórsbankann. Þar var rólegt. Það sem reddaði túrnum var veiðin í Hvalbakshallinu, á Breiðdalsgrunni og í Berufjarðarál. Það var megnið í stöðvunum hans Magga. Við fengum sirka 50 kör á stöðvunum hans. Ég vil bara nota þetta tækifæri og þakka Magga kærlega fyrir skiptin.”
Óskar Þór segir að áhöfn og leiðangursfólk hafi staðið sig með mikilli prýði. ,,Þetta er mikil vinna. Það er stutt á milli stöðva. Þetta voru einhver 170 tog sem við tókum.” segir hann og bætir við að til standi að halda til veiða annað kvöld, segir í fréttinni á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.






















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.