Reksturinn jákvæður um 597 milljónir
radhus_vestm_2022
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2024 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær. Fram kemur í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum að ársreikningurinn sýni glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir.

Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 9.509 m.kr. og rekstrargjöld 8.549 m.kr.

Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 597 m.kr. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði var rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs jákvæð um 426m.kr. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða var afkoma A-hluta jákvæð um 282 m.kr.

Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu rúmum 18.545 m.kr. í árslok 2024. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í rúmum 1.584 m.kr. (án Herjólfs) og1.951 m.kr (með Herjólfi) . Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 1.216 m.kr. á árinu.

Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er A- hluti nú skuldlaus við lánastofnanir. Jafnframt er skuldaviðmið, sem oft er vísað til í umræðu um fjármál sveitarfélaga, lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 22% af samstæðu en 19 % í A-hluta í árslok 2024.

Ársreikningurinn endurspeglar vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins sem er vel í stakk búið að standa undir framtíðaruppbygginu í sveitarfélaginu. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg, vel ígrunduð og framtíðarhorfur samfélagsins bjartar, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.