Útgerðarfélagið Hellisey bauð hæst
Simmi Vill, Sigurður, Rikki og Bragi a loknu bjóruppboði.

Skapast hefur skemmtileg hefð með Sjómannabjórnum sem drengirnir á Brothers Brewery standa fyrir á hverjum sjómannadegi. Hann var að þessu sinni helgaður Braga Steingrímssyni, trillukalli á Þrasa VE með meiru og keypti útgerðin ásamt Phoenix Seafood flöskuna á uppboði á Sjómannahátíðinni í Höllinni á laugardagskvöldið.

Útgerðarfélag Þrasa VE heitir því virðulega nafni, Útgerðarfélagið Hellisey og bauð það 800.000 krónur í flöskuna á uppboði sem Rikki á Vestmannaey VE stýrði af snilld. Bragi og Sigurður sonur hans tóku á móti flöskunni og renna peningarnir til Krabbavarnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.