Farþegafjöldinn meiri en í fyrra og bílaflutningar aldrei verið meiri
– segir Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri Herjólfs, eftir einn stærsta júlímánuð í sögu félagsins
7. ágúst, 2025
Bidrod Bbilar Herj 2022
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Það hefur verið nóg að gera hjá áhöfn og starfsfólki Herjólfs í júlímánuði og ferjan sigldi átta ferðir á dag milli lands og Eyja. Við hittum Ólaf Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóra Herjólfs, sem segir síðasta mánuð hafa verið með þeim allra stærstu í sögu ferjunnar.

„Við fluttum tæplega 86 þúsund farþega í júlí, sem er næstmesti fjöldi sem við höfum flutt í þessum mánuði,“ segir Ólafur. „Þetta er 15 prósenta aukning frá júlí í fyrra, sem er frábært að sjá. Við finnum greinilega fyrir því að fólk vill heimsækja Eyjar – bæði heimamenn og gestir.“

Hann bætir við að júlí 2023 haldi enn metinu sem stærsti mánuðurinn í farþegafjölda, þegar tæplega 90 þúsund manns ferðuðust með Herjólfi. „En við erum mjög ánægð með þróunina núna. Það er bjart yfir þessu.“

Nýtt met í bílaflutningum

Það voru þó ekki aðeins farþegatölurnar sem vöktu athygli – því aldrei áður hafa fleiri bílar verið fluttir með Herjólfi í einum mánuði.

„Við fluttum yfir 20 þúsund bíla í júlí, og á stærsta deginum náðum við að flytja 888 bíla, sem er algjört met. Það var mikið álag en starfsfólkið okkar stóð sig frábærlega.“

Ólafur segir þó að álagið hafi að sjálfsögðu haft áhrif: „Við vorum með 95 ferðir þar sem bílar voru á biðlista, en það jákvæða er að í 69 af þeim ferðum náðum við að koma öllum bílum með. Þar skipti miklu að við bættum við áttundu daglegu ferðinni yfir háannatímann.“

Fara aftur í sjö ferðir – og bjartsýni fyrir ágúst

Nú stefnir Herjólfur að því að fara aftur í hefðbundna daglega áætlun. „Frá og með 11. ágúst förum við aftur í sjö ferðir á dag, líkt og hefð er fyrir eftir háannatímabilið,“ útskýrir Ólafur.

Aðspurður um framhaldið segir hann útlitið vera gott: „Bókunarstaðan fyrir ágúst lítur  vel út og það gefur okkur tilefni til að vera bjartsýn. Það er greinilegt að Vestmannaeyjar halda áfram að heilla – og við erum stolt af því að vera hluti af því ferðalagi.“ sagði Ólafur kankvís að lokum er hann hélt út í sumarblíðuna.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 7 Tbl 2025
7. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.