Ágæt veiði á Víkinni og Höfðanum
eyjarn
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum eldsnemma í morgun. Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag en báðir voru þeir sáttir við þessa fyrstu veiðiferð eftir Þjóðhátíð.

Jón Valgeirsson á Bergey sagði að túrinn hefði verið stuttur og gengið vel. „Við tókum aflann á Víkinni og það var mest vænn þorskur en dálítil ýsa og ufsi með. Þarna var veitt í blíðuveðri og ekki yfir neinu að kvarta,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey lét einnig vel af sér. „Við tókum straujið beint á Ingólfshöfðann og vorum þar. Aflinn var langmest ýsa og svolítill þorskur í bland. Menn voru kátir og hressir að aflokinni Þjóðhátíð og í reyndinni gekk allt eins og í sögu,” sagði Egill Guðni.

Bæði skip munu halda á ný til veiða síðdegis í dag eða í kvöld.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.