Verðbólgan hjaðnar
Peninga
Rúmlega 336 milljóna króna EuroJackpot-vinningur kom til Íslands um síðustu helgi. Vinningshafarnir hafa ákveðið að deila gleðinni með börnum sínum og barnabörnum.

Vísitala neysluverðs mælist 0,15% lægri nú í ágúst en mánuðinn á undan. Vöruflokkurinn Ferðir og flutningar hefur mest áhrif til lækkunar (-0,39%). Innan þess flokks munar mest um Flutningar í lofti (-0,36%) en þar á eftir kemur Bensín og olíur (-0,03%).

Í tilkynningu frá Verðlagseftirliti ASÍ segir að eftirlitið hafi í nýlegum úttektum bent á aukið svigrúm til frekari lækkana í þeim efnum: “Lækkun á olíuverði ekki að skila sér til neytenda” og “Gengisáhrifa gætir ekki á íslenskum bensíndælum“.

Sem fyrr reynist Húsnæði, hiti og rafmagn enn helsta driffjöður verðhækkana (+0,12%) en áhrif Matar og drykkjarvara eru óveruleg (+0,01%), sem kemur heim og saman við fyrri athugun Verðlagseftirlits ASÍ. 

Minni spennu gætir á húsnæðismarkaði

Frá ársbyrjun hefur vísitala neysluverðs hækkað um rúm 3,45%, en 3,19% án húsnæðisliðarins. Það er minni munur en oft áður og ber þessi merki að dregið hafi úr spennu á húsnæðismarkaði.

 

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.