Starfið byrjar svo sannarlega á kraftmiklum súpufundi hjá Sjálfstæðisfólki í Eyjum þetta haustið. Guðrún Hafsteinsstóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins kemur til okkar og rabbar við okkur um starfið innan flokksins og verkefni komandi þings, sem svo sannarlega verður mikilvægt, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Þá má gera ráð fyrir líflegum umræður um mörg mikilvæg mál sem brenna á Guðrúnu, en ekki síður á Sjálfstæðismönnum í Eyjum. Einar Björn, hinn eini sanni, græjar súpu og dásamlegt brauð með og boðið verður upp á kaffi og kruðirí eftir það. Fundurinn hefst klukkan 12.00 á súpu og brauði og fljótlega upp úr því tekur Guðrún til máls. Hlökkum til að sjá sem flesta í Ásgarði og minnum á að allir eru velkomnir, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.