Eyjamaðurinn Jóhann Ingi Árnason, fjölmiðlafræðingur og framkvæmdastjóri í St. Louis í Bandaríkjunum, var minnst við hátíðlega athöfn í Landakirkju á laugardaginn. Jóhann Ingi fæddist 30. september 1969 í Eyjum og lést 27. október í St. Louis í Bandaríkjunum. Foreldrar hans voru Árni Óli Ólafsson, frá Suðurgarði, stýrimaður, og kona hans Hanna Birna Jóhannsdóttir. Kona Jóhanns er Amy Elizabeth Kohnen og börn þeirra eru Aron James Jóhannsson, arkítekt, 29 ára, Alex Jóhann Jóhannsson, einkaþjálfari, 27 ára, og Hanna Elizabeth Jóhannsdóttir, nemi, 19 ára.
Séra Guðmundur Örn stýrði athöfninni og flutti minningarorð. Athöfnin var mjög hátíðleg og þátttaka fjölskyldunnar gerði hana sérstaka en um leið einlæga. Börn Jóhanns Inga og Amy minntust pabba síns mjög fallega.
Auk þeirra tóku systkini Jóhanns Inga, Ólafur og Anna Svala, þátt í athöfninni og móðursystir þeirra, Rannveig Jóhannsdóttir, sagði frá kynnum sínum af Jóhanni Inga og fjölskyldu hans.
Jóhann Ingi var borinn og barnfæddur Eyjamaður og ólst upp í Suðurgarði. Hann keppti í íþróttum og var virkur í íþróttastarfi fyrir Íþróttafélagið Þór og ÍBV. Hann byrjaði ungur í blaðaútgáfu með Tómasi Inga, æskuvini sínum.
Jóhann Ingi lærði fjölmiðlafræði í Bandaríkjunum þar sem hann kynntist eiginkonunni árið 1992. Þau fluttu til Íslands að loknu námi og bjuggu fyrst í Reykjavík þar sem Jóhann ritstýrði meðal annars Skinfaxa og skrifaði fyrir Íþróttablaðið.
Árið 2000 fluttu þau til Eyja og starfaði Jóhann meðal annars sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV. Hann hellti sér síðan út í blaðaútgáfu og gaf út blaðið Vaktina en Amy Elizabeth kenndi við Barnaskólann.
Árið 2007 rann Vaktin saman við Eyjafréttir þar sem hann starfaði um hríð. Í framhaldi af því flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna. Þar fór Jóhann í MBA-nám og tók svo við stöðu framkvæmdastjóra SLYSA (St. Louis Youth Soccer Association) sem hann starfaði hjá til síðasta dags.
Það var í lok mars á þessu ári sem Jóhann Ingi greindist með krabbamein í höfði og það mein lagði hann að velli á sjö mánuðum.
Á heimaslóðum fjölskyldunnar í Bandaríkjunum var Jóhanns Inga minnst með veglegri athöfn þar sem komu saman fjölskylda, vinir, samstarfsmenn og fjöldi einstaklinga sem Jóhann hafði unnið með undanfarin ár í þágu fótboltans í Missouri.
Fjölmennt var í Landakirkju þar sem saman komu fjölskylda, æskuvinir og samstarfsfólk hans í gegnum árin.
Börn Hönnu Birnu og Árna Óla:
Þau Amy giftu sig 1995 og eignuðust þrjú börn.
Kona Jóhanns er Amy Elizabeth Kohnen, f. 5. febrúar 1973.
Börn þeirra:




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.