Góð gjöf frá Kiwanisklúbbnum Helgafelli til Bjargsins
Fulltrúar Kiwanisklúbbsins Helgafells afhenda Bjarginu fjögur ný vinnuborð. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Kiwanisklúbburinn Helgafell afhenti nýverið Bjarginu á Hraunbúðum rausnarlega gjöf í formi fjögurra nýrra stillanlegra vinnuborða sem munu nýtast eldri borgurum sem sækja dagdvölina í daglegu starfi.

Í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar segir að gjöfin sé liður í áframhaldandi stuðningi Kiwanisklúbbsins við samfélagið, þar sem lögð er áhersla á að efla aðstöðu barna, ungmenna og fjölskyldna. Vinnuborðin munu bæta vinnuaðstöðu í þjónustu Bjargsins og stuðla að aukinni vellíðan og skilvirkni í verkefnum dagsins.

Fulltrúar Bjargsins þökkuðu Kiwanisklúbbnum Helgafelli fyrir stuðninginn og sögðu gjöfina koma sér afar vel, enda væri þörf fyrir uppfærslu á húsbúnaði. Slíkur stuðningur hafi mikil og jákvæð áhrif á starfsemina. Vestmannaeyjabær þakkar Kiwanisklúbbnum innilega fyrir gjöfina, segir að lokum í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Andri Erlingsson markahæstur í fyrsta leik á EM u-20
Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.