Gera athugasemdir við deiliskipulag Strandvegar 44
24. nóvember, 2025
Tangagata 10 á lóð upp að Strandvegi 44. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja fjallaði á síðasta fundi sínum um ítarlegt erindi frá Steina og Olla byggingaverktökum ehf., lóðarhafa að Tangagötu 10, vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar á lóðinni við Strandveg 44.

Erindið, sem undirritað er af Magnúsi Sigurðssyni fyrir hönd félagsins, ber yfirskriftina „Athugasemdir hagsmunaaðila við breytt deiliskipulag á skipulagssvæði H-1 og M-1 norðan Strandvegar vegna lóðarinnar við Strandveg 44“ og er dagsett 13. nóvember 2025.

Telja málsmeðferð ófullnægjandi

Í bréfinu er gagnrýnt hvernig málið hefur verið unnið innan stjórnsýslunnar. Steini og Olli ehf. minna á að félagið hafi þegar 28. maí 2025 skilað inn athugasemdum við fyrri útgáfu deiliskipulagstillögunnar og að í kjölfar þess hafi verið haldinn fundur með starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Á þeim fundi hafi, að sögn félagsins, verið staðfest að mögulegar breytingar lóðarhafa Strandvegar 44 yrðu kynntar sérstaklega fyrir lóðarhafa Tangagötu 10 áður en þær færu aftur fyrir umhverfis- og skipulagsráð.

„Það var skýrt á þeim fundi að við fengjum að sjá breytingarnar áður en þær færu aftur í ráðið,“ segir m.a. í erindinu í samantekt. Félagið telur að það hafi ekki verið efnt. Einnig er gagnrýnt að uppfærð gögn hafi verið lögð fram á fundi ráðsins 13. október 2025 án þess að lóðarhafa Tangagötu 10 væri kynnt hvaða athugasemdir hefðu verið teknar til greina og hvernig.

Þá er spurt hvers vegna uppfærð gögn séu ekki tekin formlega aftur fyrir í ráðinu áður en málið fer til bæjarstjórnar. Í bréfinu segir að það geti ekki talist í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að bæjarstjórn fjalli um gögn sem ekki hafi hlotið heildstæða og formlega umfjöllun í viðkomandi ráði.

Skuggavarp: „Niðurstöðurnar eru þess eðlis að taka ber þær alvarlega“

Megininntak efnisathugasemda Steina og Olla ehf. lýtur að skuggavarpi og birtuskilyrðum íbúða að Tangagötu 10. Félagið hefur fengið Teiknistofu PZ ehf. til að gera sjálfstæða úttekt á skuggavarpi úr fyrirhugaðri byggingu við Strandveg 44. Í bréfinu er vísað til þess að úttektin sýni veruleg áhrif á suðurhlið hússins við Tangagötu 10:

„Niðurstaðan sýnir að skuggavarp í janúar, nóvember og desember er sambærilegt sem gerir það að verkum að skuggavarp er á stórum hluta 2., 3. og 4. hæðar frá kl. 12.00–16.00. Í febrúar og október er skuggavarp yfir sama tíma á stórum hluta 2. og 3. hæðar, og í mars og september á stórum hluta 2. hæðar.“

Þá segir jafnframt:

„Þessar niðurstöður eru þess eðlis að taka ber þær alvarlega varðandi þá tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem liggur fyrir.“

Félagið leggur áherslu á að óháður aðili sannreyni skuggavarpið sem lóðarhafi Strandvegar 44 hefur látið vinna. Sérstaklega er spurt hvort tekið hafi verið tillit til 130 cm hæðarmunar milli lóðanna, hvort breytingar á vesturhlið byggingar komi rétt inn í skuggavarpið og hver sé nákvæmlega að verki við útreikninga.

Litlar eða engar sólskinsstundir hálft árið

SKÝRINGARMYND – Skissa (sem fylgdi tillögu að deiliskipulagsbreytingu ) sem lýsir mögulegri ásýnd úr vestri.

Auk skuggavarps hefur Teiknistofa PZ ehf. unnið úttekt á sólskinsstundum fyrir Tangagötu 10 miðað við fyrirliggjandi uppdrætti að Strandvegi 44. Þar er miðað við 21. janúar, 21. febrúar, 21. mars, 21. október, 21. nóvember og 21. desember.

Samkvæmt bréfinu er niðurstaðan sú að:

„Stór hluti suðurhliðar Tangagötu 10 fær litla eða jafnvel enga sól hálft árið vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar við Strandveg 44.“

Fyrir lóðarhafa Tangagötu 10 telst þetta hafa veruleg áhrif á búsetugæði og þar með verðmæti fasteignarinnar.

Brunatæknileg atriði og lágmarksfjarlægð

Í bréfinu er jafnframt vikið að brunahönnun og lágmarksfjarlægð milli bygginga.

Vísað er til gr. 9.7.5 í byggingareglugerð og þess að hlutfall glugga á suðurhlið Tangagötu 10 sé um 33%, sem kalli á sérstaka brunahönnun. Útreikningar ráðgjafa félagsins leiði til þess að:

„Millibil milli Tangagötu 10 og Strandvegar 44 þarf að vera að lágmarki 15 metrar til að uppfylla ákvæði 9.7.5. byggingareglugerðar.“

Steini og Olli ehf. telja að skipulagsyfirvöld verði að ganga eftir því að lóðarhafi Strandvegar 44 skili inn formlegum brunatæknilegum útreikningum og að þeir verði hluti af forsendum ákvörðunar.

Krefjast vind- og birtugreiningar

Í bréfinu er einnig minnt á að félagið hafi áður bent á þörf fyrir vind- og birtugreiningu í tengslum við fyrirhugaða byggingu. Það er sett í samhengi við það að umhverfis- og skipulagsráð hefur nýlega fjallað um sambærileg atriði í nýju íbúðahverfi við Langalág og malarvöll, þar sem sérstaklega er horft til vindstrengja og birtu í hönnun fjölbýlishúsa.

„Steini og Olli ehf. vænta þess að umhverfis- og skipulagsráð horfi einnig til sambærilegrar greiningar fyrir lóðirnar að Tangagötu 10 og Strandvegi 44,“ segir í bréfinu.

Vara við verulegri virðisrýrnun – vísa til 51. gr. skipulagslaga

Í lok erindisins er sveitarfélaginu sérstaklega bent á 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um hlutlæga ábyrgð sveitarfélaga á fjártjóni sem leiðir af breytingum á deiliskipulagi sem skerða verulega verðmæti fasteigna.

Þar segir m.a. að:

„Það er enginn vafi í þessu tilviki að deiliskipulagstillagan, verði hún staðfest óbreytt, mun leiða af sér verulega virðisrýrnun margra íbúða á 2., 3. og 4. hæð nýbyggingar að Tangagötu 10.“

Og enn fremur:

„Það er ljóst að félagið mun láta reyna á þetta ákvæði verði fyrirliggjandi breyting á deiliskipulagi samþykkt óbreytt.“

Viðbrögð ráðsins

Umhverfis- og skipulagsráð þakkar bréfritara fyrir erindið og bókar að athugasemdirnar verði teknar til skoðunar að nýju að lokinni auglýsingu skipulagsbreytingarinnar.

Jafnframt samþykkti ráðið fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis (H-1) og Miðsvæðis M-1 norðan Strandvegar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar fjölbýlishúss og þjónustu við Strandveg 44, skv. skipulagslögum. Málinu hefur verið vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.