Eyjamenn sigruðu HK á útivelli
Úr leik ÍBV og Fram í Eyjum fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV lagði HK að velli í 12. umferð Olís deildar karla, í Kórnum í kvöld. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Eyjamenn komst þremur mörkum yfir um miðbik hálfleiksins. Staðan 14-16 í hálfleik. 

Liðin skiptust á að vera með forystuna í síðari hálfleik en þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum náðu Eyjamenn tveggja marka forystu. Eyjamenn gáfu í, á lokakafla leiksins og unnu öruggan sex marka sigur. Lokatölur 28-34.

Eftir leikinn eru Eyjamenn komnir með 13 stig í 6. sæti á meðan HK er í 9. sæti með 8 stig. Annar leikur fór fram í Olís deild karla í kvöld þar sem FH lagði Fram með tveimur mörkum, 28-30. 

Andri Erlingsson átti stórleik í liði ÍBV og var markahæstur í leiknum með 12 mörk. Petar Jokanovic var með 8 skot varin og Morgan Goði Garner 5.

Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 12 mörk, Daníel Þór Ingason 8, Kristófer Ísak Bárðarson 4, Hinrik Hugi Heiðarsson 3, Sveinn José Rivera 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Egill Oddgeir Stefánsson 1, Gabríel Martinez Róbertsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Sigtryggur Daði Rúnarsson 1. 

Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn Stjörnunni, föstudaginn 5. desember, kl. 18:30.

Nýjustu fréttir

Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.