ÍBV mætir Stjörnunni í dag
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV leikur í dag gegn Stjörnunni í 13. umferð Olísdeildar karla þegar liðin mætast í Heklu Höllinni klukkan 17:00. Um er að ræða mikilvægan leik fyrir bæði lið sem eru í baráttu um dýrmæt stig.

Leikurinn er sá fyrri af tveimur sem fara fram í deildinni í dag, en síðar í kvöld mætast FH og Valur í Kaplakrika klukkan 19:30.

ÍBV situr í 6. sæti deildarinnar og getur með sigri í dag styrkt stöðu sína í baráttunni um að halda sér í efri hlutanum. Stjarnan er í sætinu fyrir neðan og mun því leikurinn í dag hafa veruleg áhrif á stöðuna í kringum miðjuna.

Eyjamenn sýndu fína takta í síðasta leik og gæti sigur í dag komið liðinu í góða stöðu áður en liðin fara að undirbúa sig fyrir jólafrí deildarinnar. Stjarnan hefur hins vegar reynst ÍBV erfiður andstæðingur á heimavelli og má því búast við hörkuleik.

Eyjafréttir fylgjast að sjálfsögðu með og fjalla ítarlega um gang leiksins að honum loknum.

Nýjustu fréttir

Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Rabbi á Dala-Rafni kvaddur – Ein vertíð stóð ævina á enda
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.