Íslenska kvennalandsliðið tapaði gegn Spáni, í annarri umferð milliriðla, á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í kvöld. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að vera með forystuna. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður var staðan 7:7. Íslenska liðið náði þriggja marka forystu, 12:9, en það voru Spánverjar sem fóru með eins marks forskot inn í hálfleikinn, 13:14.
Íslensku stelpurnar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust yfir, 16:14, á upphafs mínútunum. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, voru íslensku stelpurnar þremur mörkum yfir, 19:16. Spánverjar voru hins vegar búnar að jafna leikinn í 19:19, fimm mínútum síðar. Þrátt fyrir mjög góðar 45 mínútur í leiknum, þá átti íslenska liðið fá svör síðustu 15 mínúturnar og Spánverjar unnu að lokum nokkuð öruggan sigur. Lokatölur leiksins, 23:30. Ísland er á botni riðilsins með eitt stig. Spánn er í þriðja sæti með fjögur stig.
Arnar Pétursson, þjálfari Íslands, fékk að líta rauða spjaldið á loka mínútu leiksins.
Díana Dögg Magnúsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Sandra Erlingsdóttir tóku allar þátt í leiknum. Díana Dögg skoraði tvö mörk og Sandra Erlingsdóttir þrjú. Elísa Elíasdóttir komst ekki á blað.
Mörk Íslands: Thea Imani Sturludóttir 7 mörk, Elín Klara Þorkelsdóttir 5, Sandra Erlingsdóttir 3, Elín Rósa Magnúsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Dana Björg Guðmundsdóttir 1, Katrín Tinna Jensdóttir 1, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 1.
Lokaleikur Íslands á Heimsmeistaramótinu fer fram á laugardaginn kl. 19:30, gegn Færeyjum.