Börnin okkar þurfa meira en dýrt parket og snaga úr Epal
Jóhann Ingi Óskarsson skrifar
Johann Ingi Ads IMG 4231 (1)
Jóhann Ingi Óskarsson

Stundum velti ég því fyrir mér hvernig daglegt umhverfi bæjarstjórnar lítur út í samanburði við raunveruleikann sem fjölskyldur í Vestmannaeyjum búa við. Þeir mæta til starfa í einu glæsilegasta stjórnsýsluhúsi landsins, leggja bílnum fyrir framan nýuppgert hús sem kostaði verulegar fjárhæðir og ganga inn á parket sem minnir helst á innlit í þáttum á borð við Grand Designs. Þar hengja þeir yfirhafnir sínar á snaga sem kosta meira en flestir nenna að lesa verðið á.

Á meðan sitja foreldrarnir heima hinum megin við símann og bíða eftir því að fá símtal um að loksins sé komið pláss fyrir barnið þeirra á leikskóla. Foreldrar barna með fötlun bíða eftir þjónustu sem þau eiga skýlausan lagalegan rétt á – þjónustu sem á að vera grundvallarstoð, ekki eitthvað sem hægt er að „komast í síðar“.

Nú eru liðnar rúmlega tíu vikur af skólaárinu, en sértæk frístundaþjónusta fyrir fatlaða hefur enn ekki náð eðlilegum rekstri. Biðlistar á leikskólum lengjast stöðugt. Ég þekki fjölskyldur sem þurfa að endurraða vöktum, nýta frí, leita eftir aukavinnu og treysta á stuðning frá ömmum og öfum – allt til að halda daglegu lífi saman. Samt sem áður neitar bærinn foreldrum um heimagreiðslur vegna tekjutengingar, þrátt fyrir að geta ekki boðið lágmarksþjónustu, sem er leikskólapláss. Í núverandi efnahagsástandi þar sem allt hefur hækkað og lán eru óhagstæð er þessi útfærsla einfaldlega ekki raunhæf. Ef bæjarfélagið getur ekki tryggt leikskólapláss ber því að afnema tekjutengingu heimagreiðslna. Þetta er ekki lúxus – þetta er grunnforsenda þess að fjölskyldur geti lifað eðlilegu lífi.

Þetta eru málin sem skipta okkur máli. Ekki lýsing í skrifstofuhúsnæði. Ekki parket. Ekki snagar. Ekki skemmtiatriði á árshátíð og ekki listaverk við Eldfellið. Heldur að börnin okkar fái þjónustu. Að fatlaðir einstaklingar fái það sem þeim er lofað. Að foreldrar í Vestmannaeyjum geti sinnt vinnu sinni án þess að þurfa stöðugt að vega og meta hvort kerfið standi með þeim eða móti þeim. Það er enginn að halda því fram að bærinn megi aldrei fegra umhverfi sitt – en þegar um er að ræða fjármuni bæjarbúa ber að sýna ábyrgð. Stjórnendur eru ekki að versla fyrir sjálfa sig; þeir eru að versla fyrir samfélagið allt.

Við verðum að þora að ræða þessi mál, jafnvel þótt umræðan geti verið óþægileg. Ef þeir sem sjá að eitthvað er ekki í lagi þegja, hver á þá að stíga fram? Það má ekki vera þannig að fólk óttist gagnrýni eða ávirðingar fyrir að benda á það sem betur má fara.

Vestmannaeyjabær þarf að endurskoða forgangsröðun sína. Börnin okkar og þeir sem þurfa mestan stuðning eiga ávallt að koma á undan nýjum innréttingum og útlitslagfæringum.

Við erum ekki að biðja um neitt óraunhæft – aðeins að grunnþjónustan sé tryggð áður en ráðist er í fínheitin.

 

Jóhann Ingi Óskarsson

Höfundur er smiður.

Nýjustu fréttir

Prófkjör framundan hjá sjálfstæðismönnum í Eyjum
Vara við áhrifum samgönguáætlunar
Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins
Bærinn í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Alex Freyr Hilmarsson íþróttamaður Vestmannaeyja
Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.