Jólaþorp Vöruhússins opnar á sunnudaginn
Á sunnudaginn um kl. 16 mun jólasveinninn verða á sveimi. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Kæru vinir. Við eigendur Vöruhússins viljum vekja athygli á því að litla jólaþorpið okkar opnar á sunnudaginn 14.desember kl. 15. 

Markmiðið okkar með jólaþorpinu er að allir geti mætt og myndað hefðir og skapað minningar á aðventunni. Þetta lukkaðist gríðarlega vel í fyrra og erum við mjög spennt að taka á móti ykkur aftur í ár. 

Í jólaþorpinu verður heitt súkkulaði og smákökur í boði Vöruhússins og að auki verða vöfflur og aðrar smávægilegar veitingar til sölu. Það verða söluskúrar með fallegum gjafavarning til sölu frá handverksfólki og litlum fyrirtækjum. Ýmsar uppákomur verða á hverri opnun en nánari upplýsingar um það má finna á viðburðinum: Jólaþorp Vöruhússins 2025 á Facebook. 

Á sunnudaginn mun jólasveinninn verða á sveimi um kl. 16 og jólalegar litabókamyndir verða í boði fyrir börnin (inni í Vöruhúsi ef veðrið verður okkur ekki hliðhollt). Markmiðið okkar er að veita öllum tækifæri til samveru, að hitta og sjá aðra, þiggja heitt súkkulaði og þau sem vilja nýta tækifærið og versla síðustu gjafirnar geta gert það í heimabyggð. 

Jólaþorpið verður opið sem hér segir kl. 15-17:

Sunnudaginn 14.des.

Laugardaginn 20. des. 

Sunnudaginn 21.des.

Svo verður að sjálfsögðu opið á Þorláksmessukvöldi frá kl. 17. Mikið verður yndislegt að sjá ykkur í Jólaþorpi Vöruhússins, segir í tilkynningu.

Nýjustu fréttir

Sigla síðdegis í Landeyjahöfn
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Gul viðvörun: Norðaustan hríð
ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.