Prófkjör framundan hjá sjálfstæðismönnum í Eyjum
Mynd/úr safni.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum samþykkti á fjölmennum fundi í gærkvöld að viðhafa prófkjör við röðun á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Um 60 manns tóku þátt í ákvörðuninni.

Á fundinum var tekin ákvörðun um hvaða aðferð yrði notuð við röðun listans og varð niðurstaðan sú að fara sömu leið og í síðustu kosningum og halda prófkjör.

Næstu skref eru að skipa kjörnefnd og ákveða kjördag. Stjórn fulltrúaráðs fer með það hlutverk og hefur boðað til fundar 4. febrúar þar sem lögð verður fram tillaga að kjörnefnd og dagsetningu prófkjörs til samþykktar.

Gert er ráð fyrir að prófkjörið fari fram fyrri hluta marsmánaðar. Þar mun öllum sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum gefast kostur á að bjóða sig fram og taka þátt í kosningunni. Endanleg tímasetning og tilhögun prófkjörsins verður auglýst síðar.

Í yfirlýsingu frá stjórn fulltrúaráðsins segir að prófkjör sé góð leið fyrir alla, unga sem aldna, sem hafa áhuga á bæjarmálum að taka þátt í mótun framboðsins. Allir áhugasamir eru hvattir til að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjar að enn betri bæ.

Nýjustu fréttir

Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.