Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Horft á eftir pílunni. Ljósmynd/Pílufélag Vestmannaeyja.

Fimm ungir keppendur frá Pílufélagi Vestmannaeyja vöktu athygli á DARTUNG-móti sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina, þar sem alls 76 keppendur tóku þátt. Fjórir þeirra náðu inn á stigalista mótaraðarinnar eftir sterka frammistöðu. DARTUNG er árleg mótaröð í pílukasti sem samanstendur af fimm mótum. Keppendur safna stigum á 12 mánaða rúllandi stigalista sem gefur skýra mynd af stöðu þeirra yfir tímabilið.

Í flokki 9–13 ára stóðu Jón Ólafur Sveinbjörnsson og Kristófer Daði Viktorsson sig sérstaklega vel. Þeir unnu báðir riðla sína og komust örugglega áfram í útsláttarkeppni. Jón vann sannfærandi sigur í 32 manna úrslitum áður en hann féll úr leik í næstu umferð eftir harðan leik.

Kristófer fór beint í 16 manna úrslit, þar sem hann innsiglaði sigur með glæsilegu 89 útskoti og tryggði sér sæti í átta manna úrslitum. Þar lauk þó keppni hjá honum eftir góða frammistöðu. Í eldri flokknum, 14–18 ára, kepptu þeir Birnir Andri, Ívar Skæringur og Freymundur. Freymundur lenti í erfiðum riðli og náði ekki að komast áfram, en sýndi engu að síður góða takta.

Ívar hafnaði í öðru sæti í sínum riðli og féll úr leik í 32 manna úrslitum eftir æsispennandi oddaleik þar sem úrslitin réðust á lokaköstunum. Birnir Andri náði þriðja sæti í sterkum riðli og komst í 16 manna úrslit. Þar tapaði hann naumlega, 3–2, fyrir Axel James Wright, sem hefur tvívegis orðið U18 WDF-meistari. Birnir var jafnframt meðal þeirra sem sköruðu fram úr tölfræðilega; hann var með tíunda hæsta meðaltal mótsins, 52,66, og næsthæsta meðaltal í einum leik, 68,90.

Fjórir keppendur Vestmannaeyinga – Jón, Kristófer, Ívar og Birnir – eru nú komnir á stigalista mótaraðarinnar sem nálgast má hér. Samkvæmt stjórn Pílufélags Vestmannaeyja er árangurinn afar ánægjulegur og bendir til þess að framtíð pílukasts í Eyjum sé björt. Fleiri myndir frá mótinu má sjá á facebook-síðu Pílufélags Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.