Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Mynd/ÍBV handbolti

Handbolta- og landsliðskonan Andrea Jacobsen hefur gert tveggja ára samning við kvennalið ÍBV frá og með næsta tímabili. Hún kemur til liðsins frá þýska liðinu Blomberg-Lippe. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Andrea er 27 ára gömul og leikur sem vinstri skytta. Hún hefur undanfarin ár leikið erlendis, bæði í Svíþjóð, Danmörku og nú síðast í Þýskalandi, frá árinu 2024. 

Í tilkynningu ÍBV segir ,,Andrea er einn reynslumesti leikmaður íslensks handbolta og hefur leikið með íslenska landsliðinu um árabil auk þess sem hún hefur spilað erlendis hjá félögum í Danmörku og Þýskalandi. Samtals hefur hún spilað 66 landsleiki og skorað 116 landsliðsmörk fyrir Ísland, auk farsældar í Evrópukeppnum með félögum sínum í Þýskalandi. Við erum spennt að fá hana til Vestmannaeyja. Andrea bætir miklum styrk og reynslu við hópinn”.

ÍBV er eins og er í 2. sæti Olís deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Vals

Nýjustu fréttir

Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.