Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Sjótækni ehf. bauð hundruðum milljóna króna lægra en kostnaðaráætlun í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar þegar tilboð voru opnuð í dag. Tilboðið er einnig langt undir öðrum tilboðum sem bárust í verkið
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Sjótækni ehf. á Tálknafirði átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026 til 2029 þegar tilboð voru opnuð í dag, 10. febrúar. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpa 1,19 milljarða króna og er það umtalsvert undir kostnaðaráætlun verkkaupa.

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í verkið, en gert er ráð fyrir að dýpka þurfi á bilinu 750 þúsund til 1,5 milljónir rúmmetra á samningstímanum. Fimm tilboð bárust í verkið. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar nam rúmum 2,03 milljörðum króna, en þrjú tilboð voru yfir þeirri áætlun.

Tilboð sem bárust:

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik kr.
Björgun Sement ehf., Reykjavík
2.733.836.163
134,3
1.539.861.163
Jan De Nul, Belgía
2.310.358.950
113,5
1.116.383.950
Rohde Nielsen, Danmörk
2.124.108.263
104,4
930.133.263
Áætlaður verktakakostnaður
2.035.291.775
100,0
841.316.775
Sjótækni ehf., Tálknafirði
1.193.975.000
58,7
0

 

Nýjustu fréttir

Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.