Valentínusardagurinn er í dag
Sífellt fleiri fagna Valentínusardeginum.

Valentínusardagurinn er í dag, 14. febrúar. Dagurinn hefur ekki verið mjög áberandi hér á landi en hefur á undanförnum árum orðið sífellt vinsælli.

Valentínusardagurinn er tileinkaður ást og vináttu og margir sýna ástvinum sínum hlýju með gjöfum, blómum, kortum eða samveru. Dagurinn á rætur að rekja til heilags Valentínusar, en í dag snýst hann fyrst og fremst um að gleðja þá sem manni þykir vænt um.

Í tengslum við daginn eru fyrirtæki oft dugleg að bjóða upp á ýmis tilboð og afslætti. Í ár bjóða Vöruhúsið og Einsi Kaldi til dæmis upp á sérstaka Valentínusarmatseðla um helgina. Því er tilvalið að kíkja á veitingastaði bæjarins og njóta góðrar máltíðar með ástvinum.

Nýjustu fréttir

Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.