Geri aðrir betur
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja með meiru vakti í vikunni athygli á einstökum viðburði í sögu ÍBV. Það hefur lengi verið eitt helsta metnaðarmál ÍBV að meistaraflokkar félagsins leiki í efstu deildum karla og kvenna – bæði í handbolta og fótbolta. Þetta tekst ekki alltaf en er sem betur fer staðan núna!

„Það er afar sjaldgæft, kannski einsdæmi, að öll þessi fjögur lið eigi leik sama síðdegið en það gerðist í dag. Og það er örugglega einsdæmi að sigur vinnist í öllum fjórum leikjunum eins og gerðist í dag! Á Íslandsmótinu í handbolta unnu karlarnir Hauka og konurnar KA/Þór. Og í Lengjubikarnum í fótbolta unnu konurnar Tindastól og karlarnir Leikni. Geri aðrir betur,“ segir Páll.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.