Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bæjarstjórn Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til síns 1623. fundar í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 25. febrúar, og hefst fundurinn klukkan 14.00. Fundinum verður streymt beint og geta íbúar því fylgst með umræðum og afgreiðslu mála í rauntíma.

Á dagskrá eru fjölbreytt og veigamikil mál, þar á meðal umræða um samgöngumál, íbúakosning um þróunarsvæðið M2 og fundur með Umhverfis- og orkustofnun. Þá liggja fyrir breytingar á deiliskipulagi í miðbænum, viðaukar við fjárhagsáætlanir áranna 2025 og 2026, málefni barnaverndar, daggæslu og heimgreiðslna auk breytinga á aðalskipulagi, þar á meðal vegna neysluvatnslagnar til Eyja og stækkunar iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru.

Eyjafréttir fylgjast með fundinum og greina frá helstu niðurstöðum og umræðum þegar þær liggja fyrir.

Dagskrá:

Almenn erindi
1.   201212068 – Umræða um samgöngumál
2.   201006074 – Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
3.   202601039 – Íbúakosning 2026 um þróunarsvæðið M2
4.   202602046 – Fundur með Umhverfis- og orkustofnun
Fundargerðir
5.   202601001F – Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 330
Liðir 5.1-5.8 liggja fyrir til upplýsinga.
6.   202601011F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 434
Liður 6.2, Deiliskipulag Miðbæjar Vestmannaeyja – Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna hæðar skilmála við Vesturveg 6, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 6.1 og 6.3-6.8 liggja fyrir til upplýsinga.

7.   202601013F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3252
Liður 7.3, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 7.1-7.2 og 7.4-7.12 liggja fyrir til upplýsinga.

8.   202602002F – Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 331
Liður 8.3, Vinnubátur lítill dráttarbátur, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 8.1-8.2 og 8.4-8.7 liggja fyrir til upplýsinga.

9.   202602006F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3253
Liðir 9.1-9.2 liggja fyrir til upplýsinga.
10.   202602007F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 435
Liður 10.1, Breyting á aðalskipulagi – NSL4 Neysluvatnslögn til Eyja.

Liður 10.2, Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru – Breyting a Aðal- og deiliskipulagi.

Liðir 10.3-10.9 liggja fyrir til upplýsinga.

11.   202602001F – Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja – 325
Liður 11.1, Framkvæmdaáætlun í barnavernd, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 11.2-11.4 liggja fyrir til upplýsinga.

12.   202602009F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3254
Liður 12.2, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 12.3, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 12.5, Tímabundið samkomulag um rekstur heilsuræktar, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 12.1, 12.4 og 12.6-12.11 liggja fyrir til upplýsinga.

13.   202602010F – Fræðsluráð Vestmannaeyja – 403
Liður 13.2, Heimgreiðslur, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 13.3, Daggæslumál, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða breytingar á reglum sveitarfélagsins er varðar þjónustu dagforeldra.

Liðir 13.1, og 13.4-14.4 liggja fyrir til upplýsinga.

Nýjustu fréttir

Trausti Hjaltason gefur kost á sér í efsta sæti Sjálfstæðisflokksins
Vestmannaeyjabær leitar að dagforeldrum
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Öflug íslenskukennsla í febrúar
Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri
Skjárinn sem stal æskunni
Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.