Trausti Hjaltason hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann sækist eftir efsta sæti í prófkjöri flokksins sem fram fer 13. mars næstkomandi og segir markmiðið vera að styrkja hagsmunagæslu bæjarins og stuðla að ábyrgum rekstri með festu og skýra sýn til framtíðar.
Tilkynningu Trausta má lesa í heild sinni hér að neðan.
Kæru Eyjamenn,
Vestmannaeyjar eru samfélag dugnaðar, samstöðu og tækifæra. Undanfarið hef ég fundið fyrir miklum neista og löngun til að taka þátt í bæjarmálum á ný. Þess vegna vil ég nú leggja mitt af mörkum af fullum krafti. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Ég tel að við getum styrkt bæði hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og rekstur bæjarfélagsins með meiri festu, skýrleika og áframhaldandi samstöðu. Ég kem með reynslu úr atvinnulífi og sveitarstjórn, og ég vil standa fyrir það sem skiptir máli: Ábyrgan rekstur, lægri álögur á fjölskyldur og trú á frelsi, framtak og dugnað.
Til þess að ná sem bestum árangri þurfum við að vinna saman að settu marki og ég býð alla velkomna með í þá vegferð að gera Vestmannaeyjar að enn betri stað til að búa á. Þess vegna gef ég kost á mér og óska eftir þínum stuðningi í efsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 13. mars n.k.
Trausti Hjaltason
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.