ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
ÍBV Powerade bikarmeistari 2026. Mynd/HSÍ

ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks kvenna í handbolta í dag. ÍBV stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með fimm marka sigri, 36-31.

Valsstelpur byrjuðu leikinn betur og voru með forystuna framan af í leiknum. Eyjastelpur jöfnuðu leikinn rétt fyrir hálfleiksflautið og var staðan 17-17 í hálfleik.

Eyjastelpur spiluðu góðan varnarleik í síðari hálfleik og juku forskot sitt á Valsstelpum hægt og rólega. Að lokum vann ÍBV nokkuð öruggan fimm marka sigur. Lokatölur leiksins 36-31.

Birna María Unnarsdóttir, leikmaður ÍBV,  skoraði níu mörk fyrir Eyjastelpur og var í lok leiks valin mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins.

Eyjafréttir óskar ÍBV stelpunum innilega til hamingju með titilinn!

Birna María Unnarsdóttir var valin mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins. Mynd/HSÍ

 

ÍBV stelpurnar lyfta bikarnum í leikslok. Mynd/HSÍ

Nýjustu fréttir

Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.