Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Einar Björn: Það er bara mikilvægt að tala, tjá sig og opna sig bara. Af því að þú færð frekar stuðning heldur en hitt og ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta.

Það er bara mikilvægt að tala, tjá sig og opna sig bara. Af því að þú færð frekar stuðning heldur en hitt og ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta.Eyjamaðurinn og stórkokkurinn Einar Björn Árnason, Einsi kaldi greindist með lungnakrabbamein í byrjun árs 2021. Hann er þakklátur fyrir fjölskylduna, vini og samfélagið í Vestmannaeyjum og segir að enn sé verið að spyrja hvernig hann hafi það. Hann er í viðtali á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, Krabb.is þar sem hann segir frá reynslu sinni. Tilefnið er að nú er Mottumars genginn í garð og vakin athygli á þeim meinvaldi sem krabbamein er.

„Lífið heldur alltaf áfram af fullum krafti, en svo þegar þú lendir í svona, þá að sjálfsögðu ferðu að hugsa hlutina allt öðruvísi,“ segir Einar Björn sem á rekur veitingastaðinn Einsa kalda í Vestmannaeyjum sem er landsfrægur. „Eins og í mínu tilfelli, þá er ég miklu þakklátari fyrir lífið og fyrir það sem ég er að gera og alla í kringum mig. Það er margt sem breytist.“

Einar Björn fór í aðgerð þar sem helmingurinn af vinstra lunganu var fjarlægður og svo fór hann í stranga lyfjameðferð í kjölfarið. „Þetta er eitthvað sem ég þekkti ekkert. Ég hef aldrei verið veikur og aldrei hugsað eitthvað djúpt út í það hvernig fólki líði þegar það er svona virkilega veikt.“

Hann segir hræðilegar stundir hafa komið inn á milli, en að hann hafi líka lært af reynslunni og að fjölskylda og vinir hafi veitt honum mikinn styrk. „Þú ferð náttúrulega að hugsa allt þetta versta og ég leyfði mér alveg að gera það. En það kenndi mér helling og það sem bjargaði mér svo mikið var krafturinn í minni fjölskyldu og krafturinn í eiginkonunni og vinir mínir.“

Samfélagið í Vestmannaeyjum einstakt 

Einar Björn er úr Vestmannaeyjum og segir samfélagið þar einstakt. „Maður þarf ekki nema að koma í búð og þá er gripið um mann og enn þann dag í dag verið að spyrja hvernig maður hafi það,“ segir Einar Björn. „Mér þykir ótrúlega vænt um þetta og þetta er eitthvað sem ég mun gera líka sjálfur gagnvart einhverjum öðrum sem greinist. Ég mun alltaf taka utan um hann og reyna að hjálpa honum með þetta andlega ferli.“

Hann segir afar mikilvægt að opna umræðuna og beinir orðum sínum sérstaklega til karlmanna. „Það er bara mikilvægt að tala, tjá sig og opna sig bara. Af því að þú færð frekar stuðning heldur en hitt og ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta.“

Af Krabb.is þar sem er myndbandsviðtal við Einar Björn og fleiri reynslusögur.

Play Video

Nýjustu fréttir

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.