Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Geiri hefur verið duglegur að smella myndum af sjónum. Þessa tók hann nú í febrúar.
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Loðnuvertíðin er annasamur tími fyrir sjómenn og til að halda orkunni og stemningunni uppi skiptir góð næring og vel skipulagt eldhús máli. Hólmgeir Austfjörð eða Geiri eins og hann er oft kallaður starfar um borð í Heimaey VE 1 og kokkar þegar Jónas er fríi. Hólmgeir þekkir því vel hvað þarf til að halda áhöfninni ánægðri og vel nærðri á miðunum. 

Geiri hefur starfað sem kokkur meira og minna frá árinu 2010, síðan hann opnaði 900 Grillhús. Eftir að veitingastaðurinn var seldur árið 2017 sneri hann aftur á sjóinn og hefur síðan gengið í þau störf sem þörf er á hverju sinni, hvort sem það er sem háseti, kokkur, annar eða fyrsti stýrimaður. Hann hefur starfað hjá Ísfélaginu allan þann tíma, þó ekki alltaf á sama skipi. Undanfarin tvö ár hefur hann verið á Heimaey VE 1, þar sem hann sinnir kokkastörfum í afleysingum. 

Aðspurður hvað sé það besta við starfið segir Hólmgeir að það sé fyrst og fremst áhöfnin.  

Hann segir veðrið geta haft áhrif á eldamennskuna og segir að þegar illa viðri þurfi að hugsa praktískt. ,,Það getur verið hundleiðinlegt að elda í brælu, en ef maður fylgist með veðurspá, þá bara skipuleggur maður matinn miðað við spánna og hefur bara eitthvað sem er þægilegt að eiga við, hendir einhverju í pott og lætur það malla.” 

Dagurinn í eldhúsinu byrjar yfirleitt á því að ganga frá því sem eftir kann að standa frá nóttinni og kanna stöðuna á áleggjum og fylla á box. Hádegismatur er borinn fram klukkan 11:30 og síðan er kaffitími klukkan 15:00. Kvöldmaturinn er klukkan 18:00 og eftir hann útbýr Hólmgeir oft salöt sem áhöfnin getur gripið í síðar um kvöldið, til dæmis túnfisksalat, baunasalat eða ostasalat. 

Alls eru níu í áhöfn á Heimaey og segir Geiri mikilvægt að hafa alltaf nokkrar ófrosnar máltíðir tilbúnar til taks. „Svo veltur þetta bara á tímanum sem maður hefur og hvað manni langar að elda,“ segir hann. 

Aðspurður um uppáhaldsréttinn um borð nefnir hann steiktan fisk í raspi eða kótilettur í raspi. Þó uppskriftin sé flestum kunn segir hann eitt atriði skipta sköpum. „Það er mikilvægt að láta laukinn malla vel í smjörinu svo hann verði mjúkur og svo nota rjóma og egg til að láta fiskinn liggja í áður en hann fer í raspinn.“ 

Milli vakta og veiða er eldhúsið mikilvægur samkomustaður og ljóst að áhöfnin er í góðum höndum þegar góðir kokkar eru um borð. 

Nýjustu fréttir

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.