Kallar eftir tafarlausum úrbótum
„Ekkert varaplan“ segir þingmaður um stöðu samgangna milli lands og Eyja
Landeyjahöfn hefur verið lokuð vegna grynninga undanfarnar vikur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins flutti í dag ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi þar sem hann gagnrýndi ástand samgangna til Vestmannaeyja og lokun Landeyjahafnar.

Í ræðu sinni benti Karl Gauti á að loðnuvertíðin stæði nú sem hæst. Frystingu væri víðast hvar að ljúka og verksmiðjur að hefja hrognavinnslu. Verðmætasköpunin væri því í fullum gangi og skilaði milljarðatugum í ríkissjóð.

„Á sama tíma eru samgöngur við okkar helsta sjávarútvegsbæ lamaðar,“ sagði hann og vísaði til þess að Landeyjahöfn væri lokuð vegna grynninga.

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

Af þeim sökum hefur Herjólfur siglt til Þorlákshafnar meira og minna síðustu tvo mánuði. Þá benti þingmaðurinn á að sanddæluskipið Álfsnesið væri bilað og að viðgerð gæti tekið 10–20 daga samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum. Að henni lokinni þurfi enn að dýpka höfnina sjálfa og sé opnunartími óviss þar sem veður hafi veruleg áhrif á framkvæmdir.

„Það er ekkert varaplan hvað samgöngur varðar í Vestmannaeyjum, ekkert varaplan,“ sagði Karl Gauti.

Spyr um kostnaðinn

Þingmaðurinn velti því upp hvort stjórnvöld geri sér grein fyrir þeim kostnaði sem felist í ótryggum samgöngum við Eyjar. Allt verði dýrara – afurðir verði eldri og lakari, auk þess sem íbúar þurfi að leggja í aukinn tíma og útgjöld til að sækja sér þjónustu sem aðrir landsmenn telji sjálfsagða.

Hann líkti stöðunni við það ef snjóruðningstæki bilaði og ekki tækist að opna vegi úti á landi. Þá væri brugðist við með varatæki til að opna veginn, en slíku væri ekki til að dreifa þegar kæmi að „þjóðveginum til Vestmannaeyja“.

Kallar eftir lausnum

Karl Gauti sagði brýnt að tryggja samgöngur til og frá Eyjum. Þörf væri á öflugra dæluskipi og á meðan ástandið vari þyrfti að bæta við flugi til Eyja.

Að lokum kallaði hann eftir því að þegar í stað yrðu lagðar fram skýrar og varanlegar lausnir á því hvernig bæta mætti Landeyjahöfn svo hún gæti sinnt hlutverki sínu til framtíðar.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.