Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum breytingar á skipan í ráðum og nefndum bæjarins samkvæmt 42. grein bæjarmálasamþykktar. Þrír fulltrúar láta af störfum í nefndum bæjarins, en þeir hafa nýverið tilkynnt að þeir hafi gengið til liðs við Miðflokkinn.
Sonja Andrésdóttir hættir sem varamaður í fjölskyldu- og tómstundaráði. Í hennar stað kemur Páll Magnússon. Sæunn Magnúsdóttir hættir sem aðalmaður og varaformaður í framkvæmda- og hafnarráði. Ragnheiður Sveinþórsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í ráðinu og Hannes Kristinn Sigurðsson verður varaformaður.
Jón Þór Guðjónsson hættir sem varamaður í fræðsluráði og í hans stað kemur Aníta Óðinsdóttir. Tillögurnar voru samþykktar samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.