
Taflfélag Vestmannaeyja varð í dag Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Titillinn kemur á einstaklega skemmtilegum tíma því félagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári.
Eyjamenn fóru inn í lokaumferðina í harðri baráttu um efsta sætið eftir dramatískan sigur kvöldið áður. Í dag tókst liðinu síðan að landa sigrinum sem þurfti til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn eftir spennandi keppni við sterkustu skáklið landsins. Eyjamenn byrjuðu ekki vel í dag. Þeir töpuðu tveimur fyrstu skákunum, en sveitin kom sterk til baka og náði að landa sætum sigri.
Sveit Taflfélags Vestmannaeyja var skipuð þeim Jaime Santos Latasa, Abhijeet Gupta, Jóhanni Hjartarsyni, Helga Ólafssyni, Simon K. Williams, Birni Þorfinnssyni, Erni Leó Jóhannssyni og Guðmundi Gíslasyni. Liðsstjóri var Þorsteinn Þorsteinsson, en þess má geta að hann tefldi einnig með sveitinni. Þess má geta að fleiri skákmenn hafa leikið með sveitinni í vetur, en spilaðar eru 10 umferðir.
Árangurinn er stór áfangi fyrir Taflfélag Vestmannaeyja sem hefur ekki áður náð að vinna þennan titil. Að vinna Íslandsmeistaratitilinn á sama ári og félagið fagnar aldarafmæli sínu er því sannkölluð afmælisgjöf til félagsins og skáklífsins í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir óskar sveitinni og forsvarsmönnum félagsins innilega til hamingju með titilinn.




Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.