Halldór Jón aftur í ÍBV
Halldór Jón Sigurður Þórðarson. Mynd/ÍBV knattspyrna

Knattspyrnumaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson hefur gengið til liðs við ÍBV á nýjan leik frá Fylki. Halldór gerir tveggja ára samning við ÍBV en það að hann þekki aðstæður í Eyjum er öflugt og kemur hann til með að koma sér hratt og örugglega í takt við liðið. ÍBV greindi frá tíðundunum á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. 

Í tilkynningunni kemur einnig fram ,,Halldór er fæddur 1996 og hefur leikið 196 meistaraflokksleiki. Hann leikur aðallega sem sóknarmaður en hefur eiginleika til að spila fleiri stöður á vellinum. Halldór lék með ÍBV árin 2022 og 2023 en þá kom hann til liðsins frá Víkingi. Hann skoraði þrennu í góðum sigri á Valsmönnum 2022 á Hásteinsvelli sem flestir Eyjamenn muna vel eftir”. 

 Knattspyrnuráð bindur miklar vonir við leikmanninn og vonast til að hann nái að styrkja lið ÍBV fyrir baráttuna í Bestu deildinni.

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.