Fulltrúar Kvenfélagsins Líknar komu í dag í heimsókn á HSU þar sem þær færðu stofnuninni nýtt ómskoðunartæki.
Gjafir af þessu tagi hafa lengi verið mikilvægur þáttur í starfi félagsins, en Líknarkonur hafa í gegnum árin lagt sitt af mörkum til að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir sjúklinga og starfsfólk.
Kvenfélagið Líkn hefur um langt skeið stutt við heilbrigðisþjónustuna í Vestmannaeyjum með fjáröflunum og ýmiss konar viðburðum þar sem ágóðinn rennur til góðgerðamála.
Óskar Pétur mætti og smellti nokkrum myndum.






