Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Greinarhöfundur og Margrét Rós.

Aðsend grein

Kristinn Pálsson

Ýmsar manngerðir finnast í pólitík. Sumar hverjar birtast eins og páskaskraut rétt fyrir prófkjör, alveg glansandi glaðar en hverfa um leið og kosningakaffið kólnar. Aðrar skipta um ham eftir veðri og láta ekki sjá sig fyrr en vindar blása þeim í vil. Þá eru það þær sem með eintómu handapati hræra í loftinu einu saman og kallar það dagsverk, með klappi á baki. Svo er það Margrét Rós.

Því hún er engin eftirlíking og ekki er hún liðhlaupi. Margrét er blá inn að beini og fer ekki leynt með það. Hún hefur staðið með sínum flokki í gegnum súrt og sætt, meðan aðrir í villu vegar brugðu sér af bæ. Nei, hún Margrét er ekki þannig, því hún er eins í orði og á borði.

Ég kynntist Margréti vel í undirbúningsnefnd Goslokahátíðar. Við unnum saman um árabil að hátíðinni og fleiri góðum verkefnum síðar. Hún tók ekki við stjórn nefndarinnar til að hella upp á könnuna. Þvert á móti. Því eitt af hennar fyrstu verkum var að skera niður kaffisjóð sem áður hafði brauðfætt fyrra nefndarfólk. Bæjarbúar voru sko ekki að fara bruðla einhverju vínarbrauði í okkur „ekki bræðurna“ Kristinn og Hjalta Pálssyni. Það er einmitt í hennar anda að fara vel með annarra manna fé. Með Margréti var markmiðið alltaf að gera þrjár krónur úr hverri einni, virkja kraft einstaklingsins, fyrirtækjanna og endurskoða öll óþörf útgjöld hátíðinni í hag.

Já, þannig er Margrét. Hún berst fyrir verkefnum sem eru ekki henni persónulega til framdráttar. Með Hásteinsrokið í fanginu barst hún að innviðum á velli sem hún mun ekki hlaupa um sjálf, skipuleggur hátíðir þótt djamm sé ekki hennar te og stendur vörð um annarra börn. Því að vera Margrét snýst sko ekki um að sitja á háum hesti, rausa í ræðupúlti eða blása í lúðra sjálfri sér til dýrðar.

Fyrir fimm árum gekk hún í gegnum áfall sem barið hefði marga niður. En Margrét fékk annað tækifæri sem hún ætlar að nýta vel. Föstudaginn 13. mars færð þú þess vegna það tækifæri að tryggja áframhaldandi aðkomu hennar að bæjarmálunum. Settu því vinkonu mína Margréti Rós í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Hún er nefnilega í þessu fyrir þig en ekki sjálfa sig.

Kristinn Pálsson

Nýjustu fréttir

Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.