Gleðilegan kjördag, kæru vinir.
Í dag fer fram í Ásgarði prófkjör Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Kjörstaður er opinn frá kl. 14:00 til 22:00.
Ég er einn af þeim 14 einstaklingum sem bjóða sig fram í prófkjörinu og sækist eftir 3. sæti. Allir frambjóðendurnir eru frábært fólk sem hefur ákveðið að gefa af tíma sínum og krafti til að vinna að framgangi okkar sameiginlegu hagsmuna.
Það sem ég hef fram að færa er einlægur vilji til að gera samfélaginu okkar gott og standa vörð um hagsmuni Vestmannaeyja. Ég þekki stjórnsýslukerfið vel í gegnum störf mín og setu í ráðum bæjarins undanfarin ár. Pólitíska starfið þekki ég einnig vel eftir þátttöku mína í grasrótarstarfi, og kjarnanum í Eyjasálinni finnst mér ég hafa kynnst á 20 ára sjómannsferlinum.
Ég elska bæinn minn og veit ekki um annan stað á jarðríki þar sem ég gæti hugsað mér að búa. Það er ein mín mesta blessun lífsins að hafa fengið að fæðast hér, alast upp hér og geta boðið mínum börnum og barnabörnum upp á hið sama.
Ef þú vilt mann með reynslu og ástríðu fyrir samfélaginu okkar og líkar við þau störf sem ég hef unnið fyrir bæjarfélagið, hvort sem er á sviði menningarmála eða annars, þá mátt þú endilega merkja við mig á kjörseðlinum í dag.
Ég sækist eftir 3. sæti og þakka kærlega fyrir stuðninginn.
Jarl Sigurgeirsson