Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á öllum spásvæðum landsins. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi í nótt kl. 01:00 og gildir til kl. 08:00 á laugardagsmorgun. Í viðvörunarorðum fyrir landshlutann segir: Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.
Sunnan 13-20 m/s og rigning, hiti 5 til 8 stig. Suðvestlægari og skúrir seinnipartinn, en él í kvöld og bætir í vind. Kólnar í veðri. Suðvestan og vestan 15-23 og dimm él á morgun, frost 0 til 5 stig.
Spá gerð: 19.03.2026 09:54. Gildir til: 21.03.2026 00:00.
Alldjúp lægð fyrir vestan land stýrir veðrinu fram á helgi. Hún veldur sunnan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og vestantil. Fremur hlýtt í veðri. Seinni partinn fara skil lægðarinnar austur yfir land. Vindur verður þá vestlægari, með skúrum og síðar éljum í kvöld, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Kólnar í veðri.
Lægðin þokast til norðausturs og á morgun er spáð suðvestan hvassviðri eða stormi með dimmum éljum og vægu frosti, sem sagt öflugum útsynningi. Austurland ætti þó að sleppa að mestu við élin.
Á laugardag fer smám saman að lægja, en þá nálgast næsta lægð úr suðri. Aðfaranótt sunnudags hvessir líklega talsvert af norðvestri með snjókomu þegar lægðin fer hjá, skammt austur af landinu. Á sunnudaginn fjarlægist lægðin og þá fer að lægja, fyrst vestantil á landinu.
Spá gerð: 19.03.2026 06:37. Gildir til: 20.03.2026 00:00.
Þá sendi Herjólfur frá sér viðvörun í gær þar sem farþegum sem ætla sér að ferðast með Herjólfi á föstudag og fyrrihluta laugardags er bent á að aðstæður til siglinga séu ekki hagstæðar skv. veður- og sjólagsspá.
Þeir farþegar sem eiga bókað eru beðnir um að fylgjast vel með miðlum Herjólfs ef gera þarf breytingu á áætlun og ferðast fyrr en seinna hafi þeir tök á.