
Í Vestmannaeyjum hefur lengi skort afþreyingu fyrir börn innandyra, sérstaklega á dögum þegar veður hamlar útiveru. Nú hafa þau María Rán og maki hennar tekið málin í sínar hendur og vinna að því að opna innileikvöll fyrir börn í Vestmannaeyjum.
Parið hefur þegar keypt leikgrind úr Smáralind og hafa síðustu misseri unnið að því að þróa hugmyndina áfram, finna hentugt húsnæði og móta hvernig leiksvæðið gæti orðið. Hugmyndin ber nafnið Leikhöllin og er ætlað að verða leikstaður fyrir börn þar sem fjölskyldur geta komið saman allt árið um kring.
,,Hugmyndin kviknaði í raun út frá eigin reynslu okkar sem foreldra í Vestmannaeyjum. Það vantar stað þar sem börn geta leikið sér inni allt árið, sérstaklega þegar veðrið er vont. Úr því varð hugmyndin um Leikhöllina, öruggan og skemmtilegan leikheim fyrir börn þar sem fjölskyldur geta komið saman. Eftir að gæsluvöllurinn hætti á sumrin fórum við líka að hugsa um að það væri gagnlegt að bjóða upp á barnagæslu á þeim tíma sem leikskólar eru lokaðir. Þegar við sáum síðan að leikgrindin úr Smáralind væri til sölu varð hugmyndin mun raunverulegri og verkefnið fór að þróast í kringum hana,” segir María.

Verkefnið hefur þegar fengið styrk úr sjóðnum „Viltu hafa áhrif“ frá Vestmannaeyjabæ. Samhliða því stendur nú yfir söfnun á Karolina Fund þar sem markmiðið er að safna fjármagni til að hrinda verkefninu í framkvæmd.
Samkvæmt Maríu hafa viðbrögð samfélagsins verið afar jákvæð.
,,Margir foreldrar hafa sagt að svona stað hafi vantað lengi í Eyjum og margir hafa sýnt verkefninu stuðning bæði á samfélagsmiðlum og í söfnuninni. Það er greinilegt að þörfin fyrir svona leiksvæði er til staðar. Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem hefur verið sýndur og erum spennt fyrir framhaldinu.”
Áhugasamir sem vilja leggja verkefninu lið geta gert það í gegnum Karolina Fund þar sem safnað er fyrir verkefninu og uppbyggingu Leikhallarinnar.
,,Staðan núna er að um 6.600 evrur hafa safnast af 12.000 evra markmiði, sem er um 55% af heildinni. Fólk sem vill taka þátt og styðja verkefnið hefur tíma til 26. mars til að leggja sitt af mörkum,” segir María.
Ef markmiðinu verður náð er næsta skref að hefja sjálfar framkvæmdirnar, koma leikbúnaðinum fyrir og undirbúa rýmið fyrir opnun.
Ef allt gengur að óskum gæti Leikhöllin því orðið nýr samkomustaður fyrir börn og fjölskyldur í Vestmannaeyjum. Með verkefninu vilja María Rán og maki hennar skapa öruggt og skemmtilegt rými þar sem börn geta leikið sér innandyra allt árið um kring, óháð veðri, og þannig bæta við afþreyingu fyrir yngstu íbúa bæjarins.