Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Fjölskyldan við opnun sýningarinnar 2019. Þröstur, Guðbjörg, Jói og Heiðrún. Mynd Eyjafréttir.

„Ein síðasta teikningin mín í myndröð fyrir Landhelgisgæsluna 2023. Þar með lauk atvinnumennsku minni. Hafði þá teiknað u.þ.b. 4.500 teikningar í fjarvinnslu fyrir stofnanir og fyrirtæki í um 21 ár,“ segir Jói Listó á Facebook-síðu sinni í dag.

Mikil aðsókn var á sýningu Jóhanns Jónssonar, Jóa Listó, sem opnaði í Einarsstofu í Safnahúsinu í mars 2019. Sýningin var sett upp í samstarfi við myndlistarmanninn Gunnar Júlíusson og þar mátti sjá vatnslitamyndir ásamt fjölbreyttum verkum frá ferli Jóa. Sýningin stóð út mánuðinn og þar voru sýnd verk frá síðustu öld og fram á okkar daga, bæði hefðbundin list og annars konar vinna.

Jói er þekktur fyrir vatnslitamyndir sínar en hefur einnig unnið að myndskreytingum, frímerkjum og skúlptúrum. Ljósmyndun hefur þó lengi verið hluti af starfi hans, þótt hann hafi sjaldan sýnt þær opinberlega. Á sýningu sama ár, „Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt“, sýndi hann úrval ljósmynda sem hann hefur tekið í gegnum árin.

Hann hóf að taka ljósmyndir af alvöru árið 1974, í kjölfar eldgosins í Vestmannaeyjum, og skrásetti uppbygginguna sem fylgdi. Með tilkomu stafrænnar tækni árið 2002 þróaði hann myndvinnslu sína áfram og lítur á hana sem mikilvægan hluta listsköpunar.

Jói segist hafa tekið saman lista yfir sýningar sínar en finni hann ekki núna. Hann telur þær vera um 30 talsins, bæði einka- og samsýningar, og verk hans eru í einkasöfnum í 11 til 12 löndum í fjórum heimsálfum. Þótt hann hafi ekki málað í 20 ár hefur hann verið virkur í myndlist á öðrum vettvangi og upplifað það sem spennandi ævintýri.

Hefur hann unnið að öryggismálum sjómanna og er stoltur af að hafa lagt sitt af mörkum til fækkunar slysa á sjó. Hann kom að verkefnum tengdum Slysavarnaskóla sjómanna og síðar nefndarstarfi á vegum Siglingastofnunar/Samgöngustofu. Árið 2001 hófst formlegt samstarf hans eftir að athygli vakti leiðbeiningaspjald sem hann hannaði fyrir sjómenn. Myndin fyrir Landhelgisgæsluna, sem hann birti á samfélagsmiðlum, er gott dæmi um það.

Jói segir tækifærið hafa verið ómetanlegt. Hann nefnir einnig að hann hafi unnið að hönnun frímerkja og skreytinga fyrir Póstinn, sem einnig voru sýnd á sýningunni.

ÞRÍR, vatnslitir og gvass frá árinu 1989.

Á Heimaslóð segir um Jóa:

Jóhann Jónsson (Jói Listó), fiskiðnaðarmaður og myndlistarmaður, fæddist 6. febrúar 1948 í Þórunnarseli í Kelduhverfi. Foreldrar hans voru Jón Pálsson bóndi (1900–1966) og Kristín Sigvaldadóttir húsfreyja (1906–1996).

Hann ólst upp hjá foreldrum sínum og nam listmálun í Myndlistarskóla Vestmannaeyja hjá Páli Steingrímssyni og fleirum. Jóhann kom til Vestmannaeyja árið 1966 og flutti þangað ári síðar. Þar starfaði hann í Fiskiðjunni, meðal annars sem Baadermaður og verkstjóri, en myndlistin varð síðar aðalstarf hans.

Jóhann hélt fjölmargar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga hér á landi. Einnig hélt hann sýningu í Svíþjóð árið 1990 í tengslum við vinabæjamót.

Hann kvæntist Guðbjörgu Engilbertsdóttur 3. júní 1972. Hún er fædd 31. desember 1950 og starfaði sem húsfreyja og fiskiðnaðarkona. Þau eignuðust tvö börn og bjuggu fyrst að Heiðarvegi 57, síðar að Bröttugötu 27. Börn þeirra eru Heiðrún Lára og Þröstur.

ÞRÍR, vatnslitir og gvass frá árinu 1989.

Fjölskyldan við opnun sýningarinnar í Einarsstofu 2019: Þröstur, Guðbjörg, Jói og Heiðrún.
Mynd: Eyjafréttir.

Nýjustu fréttir

Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.