
Þóra og Óskar vissu hvað drengjunum sínum var fyrir bestu þegar þeir uxu úr grasi og öfluðu sér fyrstu tekna. Þau lögðu að þeim að fjárfesta í húsum, sem þeir og gerðu. Matthías byggði á Illugagötu 4, Kristján á Illugagötu 32 og Sigurjón á Illugagötu 44. Matthías er enn í sama húsinu en Sigurjón og Kristján bjuggu í sínum húsum til ársins 2019. Leó, bróðir þeirra, byggði hús að Hrauntúni 23.
„Ætli við höfum ekki verið sautján eða átján ára þegar við fórum að huga að húsbyggingum. Við Matti keyptum saman lóðina að Illugagötu 4. Þar var komin gólfplata og timburstafli fylgdi með sem fór í að útbúa dúfnakofa og byrgi. Þegar kom að því að ég færi að byggja var kastað upp túkalli og Matti hafði betur,“ segir Sigurjón.

Sparisjóðurinn stóð ekki við sitt
Sigurjón flutti inn í sitt hús 11. maí 1968, á sjálfan lokadaginn. „Ég held að ég hafi verið eitt og hálft til tvö ár að byggja. Þá var ég í Stýrimannaskólanum og vann við húsbygginguna sumarið 1967. Þegar við fluttum inn var litla klósettið tilbúið og hluti af stofunni, en annað var ófrágengið. Svona var þetta á þessum árum.“
Þá, eins og nú, þurfti fólk í byggingaframkvæmdum að taka lán. Sigurjón, nýbyrjaður í námi í Stýrimannaskólanum, hafði samband við Þorstein Víglundsson sparisjóðsstjóra sem lofaði honum láni fyrir gleri í húsið.
„Þegar glerið kom fékk ég hins vegar ekki lánið og fór í Útvegsbankann þar sem ég fékk fyrirgreiðslu. Eftir það steig ég ekki fæti inn fyrir dyr Sparisjóðs Vestmannaeyja í mörg ár.“ Sigurjón lauk við að byggja húsið sitt og lauk einnig Stýrimannaskólanum með láði.

Öflug fjölskylda í útgerð og fiskvinnslu
Fjölskylda Sigurjóns er enn í útgerð og fiskvinnslu. Hún gerir út togarann Þórunni Sveinsdóttur VE og rekur fiskvinnsluna Leo Seafood. Upphaf starfseminnar má rekja til ársins 1976 þegar Óskar, Sigurjón og Gísli Sigmarsson keyptu fiskverkunarhús að Garðavegi 14 og stofnuðu fiskverkunarfyrirtækið Nöf. Starfsemi hófst árið 1977.
„Húsið stóð autt og við byrjuðum að salta fisk og gerðum það til ársins 1988, þegar við leigðum húsið. Heilmikið var unnið þarna og óhemju mikið að gera hjá pabba. Þar störfuðu allt að 40 manns þegar mest var, þar á meðal tengdadætur mömmu og pabba, Sigurlaug, Emma og Inga, systurnar Kristjana og Guðný og barnabörnin; synir okkar Sigurlaugar, Viðar og Gylfi, Óskar Þór sonur Emmu og Stjána, Svenni Matt, frændi þeirra, Bjössi Snæ, mágur pabba, og fleira gott fólk.
Afli var unninn af Leó, Þórunni Sveins og Katrínu sem Gísli átti. Þetta hafa verið 2.000 til 3.000 tonn sem fóru í gegnum Nöfina á vertíð. Við vorum líka í skreiðarverkun og þurrkuðum hausa. Hausaþurrkunin var mikið ævintýri og hausum var hent út um allt hraun. Svo seldist ekkert og fóru margir illa út úr því. Við skulduðum ekkert í hausunum og sluppum þokkalega. Þegar við hættum tóku Einar og Gústi á Kap, Gulli á Gandí og Bjarni Sveins húsið á leigu og Gísli Sigmarsson var með þeim.“

Leo Seafood verður til
Eftir Ísfélagsbrunann í desember 2000 komu starfsmenn Ísfélagsins — Jón Svansson, Björn Þorgrímsson, Einar Bjarnason og Daði Pálsson — til Sigurjóns og vildu stofna fiskverkun. Þeir höfðu augastað á Nöfinni sem þá stóð auð. Sjálfur segist Sigurjón ekki hafa haft áhuga á að fara út í fiskvinnslu en sló þó til — og hefur það eflaust haft sitt að segja að tengdasonurinn Daði var í hópnum.
Úr varð fyrirtækið Godthaab í Nöf, myndarleg fiskvinnsla sem þeir ráku saman til ársins 2018. „Þá keyptum við Jón, Björn og Einar út og nú heitir félagið Leo Seafood og er að öllu leyti í eigu fjölskyldunnar. Fyrirtækið er mjög tæknivætt, með fullkomnar skurðarvélar og mjög stóran lausfrysti. Vinnslan er afar fjölbreytt. Við tökum á móti öllum fiski nema karfa, sem við sendum út. Í heildina eru um 80 manns á launaskrá.
Húsnæði Leo Seafood hefur verið stækkað og endurbætt samhliða auknum umsvifum. Nýlega var tekin í notkun ný og mjög vistleg starfsmannaaðstaða og enn er unnið að frekari endurbótum,“ sagði Sigurjón árið 2021. Sala á Leo Seafood og Ós ehf., útgerð Þórunnar Sveinsdóttur VE, til Vinnslustöðvarinnar lagði síðar grunninn að Laxey.
Viðtalið var í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2021. Fleiri greinar úr sögu fjölskyldu Óskar og Þóru næstu daga.