Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja kynnti á síðasta fundi bæjarstjórnar endurskoðaðan ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 sem sýnir eina bestu rekstrarniðurstöðu bæjarins í fimmtán ár. Var þetta seinni umræða.
Samkvæmt reikningnum var afkoma samstæðu bæjarins, A og B hluta, jákvæð um 781 milljón króna sem er 345 milljónum króna umfram áætlanir. Engar tölulegar breytingar voru gerðar frá fyrri umræðu en textaskýringar voru lagfærðar, segir í fundargerð. Í framsögu sinni fór bæjarstjóri jafnframt yfir þróun lykiltalna í rekstri sveitarfélagsins allt frá 2006 til 2025.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, sveitarsjóðs var jákvæð um 296 milljónir króna og nam 536 milljónum fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Það bendir til þess að rekstur bæjarins standi traustum fótum þrátt fyrir krefjandi aðstæður í rekstri sveitarfélaga.
Við umræðu um málið tóku til máls auk bæjarstjóra Eyþór Harðarson, Njáll Ragnarsson, Helga Jóhanna Harðardóttir og Páll Magnússon.
Í bókun meirihluta E- og H-lista kemur fram að fjárfestingar hafi aukist á árinu og allar verið fjármagnaðar með eigin fé. Ekki var gripið til lántöku. Handbært fé frá rekstri nam 1761 milljón króna við áramót og heildarhandbært fé samstæðunnar var tæpir 2,4 milljarðar króna í lok árs.
Fram kemur að áhersla hafi verið lögð á að greiða niður skuldir á undanförnum árum og hafi það skilað sér í sterkari stöðu en víða annars staðar. Sveitarsjóður er nú skuldlaus við fjármálastofnanir. Í bókun meirihlutans segir að ársreikningurinn endurspegli sterka fjárhagsstöðu sem geri sveitarfélaginu kleift að halda áfram uppbyggingu. Samhliða því sé þó mikilvægt að halda áfram að sýna aðhald í rekstri þar sem ytri þættir geti haft áhrif á afkomu.
Fram kom að mikil uppbygging sé þegar hafin í Vestmannaeyjum og að framtíð samfélagsins sé talin björt með auknum möguleikum til að styrkja innviði, bæta þjónustu og styðja við atvinnulíf.
A-hluti Vestmannaeyjabæjar 2025
Samstæða Vestmannaeyjabæjar 2025
Stofnanir og félög
Hafnarsjóður Vestmannaeyja 2025
Félagslegar íbúðir 2025
Fráveita Vestmannaeyja 2025
Vatnsveita 2025
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf. 2025
Náttúrustofa Suðurlands 2025
Eygló eignarhaldsfélag ehf. 2025
Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2025 var samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.