Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum
Tjaldurinn og dúfurnar una sér vel í Herjólfsdal og vonast eftir betri tíð með blóm í haga.

Í Vestmannaeyjum er tjaldurinn einn helsti vorboðinn og lætur sjá sig seint í mars eða í byrjun apríl. Þetta er þó breytilegt milli ára og fer eftir veðurlagi. Á mildum vetrum sést hann jafnvel um miðjan mars en í köldum árum getur koma hans dregist fram í apríl.

Nú er hann mættur, eins og sjá mátti í Herjólfsdal í gær. Þar var stór hópur á flötunum og tók duglega til matar síns í kappi við dúfurnar, sem hafa helgað sér Dalinn allt árið. Fór vel á með þeim.

Fyrstu merki um komu tjaldsins fara sjaldnast fram hjá Eyjamönnum. Oft heyrist hvellt og áberandi kall hans áður en fuglinn sjálfur sést. Fljótlega eftir það tekur hann sér stöðu í bænum, gengur um grasflatir og opin svæði og leitar sér fæðu. Skömmu síðar hefst varptíminn og pör velja sér varpsvæði og verja þau af mikilli ákveðni, gjarnan í nálægð við mannabyggð.

Tjaldurinn er þannig orðinn órjúfanlegur hluti af vorinu í Eyjum. Fyrir marga markar fyrsta kall hans skýr tímamót – að veturinn sé á undanhaldi og að vorið sé loksins gengið í garð.

Enn ríkir vetur víðast hvar á landinu og snjór þekur jörð en hér stoppar hann sjaldnast lengi. Sem dæmi má nefna að snjórinn sem féll í nótt er að hverfa og nóg að bíta fyrir mófuglana.

 

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.