Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, tjáir sig um stöðu sína eftir nýafstaðið prófkjör í færslu á Facebook í dag. Þar segir hún meðal annars að hún hafi orðið fyrir neikvæðum ummælum í kjölfar prófkjörsins en sé sátt við eigin ákvörðun og stöðu.
Í færslunni segir Margrét að hún hafi meðal annars verið kölluð „fýlupúki“ og „tapari“ og að hún hafi ítrekað verið tengd við Elliða Vignisson, fyrrverandi bæjarstjóra.
„Elliði Vignisson er góður vinur minn og mér þykir mjög vænt um hann. Hann hefur reynst mér ótrúlega vel, kennt mér mikið og staðið með mér, jafnvel þó við séum ekki alltaf sammála. Því það gera sannir vinir,“ skrifar hún.
Margrét segist jafnframt sjá eftir því að hafa fundið sig knúna til að gera lítið úr þeirri vináttu í pólitískri umræðu síðustu ára. Hún hafnar því að hún sé í fýlu eða líti á sig sem tapara.
„Maður er ekki í fýlu eða tapari ef maður bendir á óheilindi eða það sem betur má fara, þó maður fái stundum bágt fyrir,“ segir hún.
Í lok færslunnar segir Margrét að hún sé sátt í huga og hjarta með að hafa ekki tekið sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. „Þegar allt kemur til alls þá er það það sem skiptir máli, að standa með sjálfum sér og sínum prinsipum,“ skrifar hún.