Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Mörgum brá í brún þegar vélin fór yfir Eyjar.

Vél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Vestmannaeyjar í dag og vakti töluverða athygli.

Mörgum Eyjamanninum var brugðið þegar þota Icelandair flaug í um 30 metra hæð yfir bæinn um klukkan 15.30 í dag. Kom hún yfir bæinn úr austri. Skreið yfir nýja hraunið og yfir bæinn með miklum látum. Meðfram Heimakletti, yfir bæinn og út yfir sjóinn við Smáeyjar.

Héldu sumir að flugvélin myndi lenda á sjónum en þegar hún kom út fyrir Smáeyjar hækkaði hún flugið og var sennilega á leiðinni til Keflavíkur. Mikil umræða varð um málið á samfélagsmiðlum. Þar var m.a. fullyrt að flugstjórinn væri í sínu síðasta flugi, með tengsl við Vestmannaeyjar og viljað kveðja með eftirminnilegum hættu.

Hér má sjá myndband af fluginu sem Richard Bjarki náði.

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.