Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.
Nafn: Guðbjörg Sól Sindradóttir.
Aldur: 21 árs.
Fjölskylda: Móðir mín er Fríða Hrönn Halldórsdóttir, gift Ágústi Sævari Einarssyni og systur mínar eru þær Thelma Lind, Andrea, Ester Lóa og Betsý María. Faðir minn er Sindri Óskarsson, giftur Ragnheiði Borgþórsdóttur, systkini mín eru Silja Elsabet, Óskar Alex, Herborg og Teitur.
Menntun og störf: Ég starfa á íbúðarkjarna og við afgreiðslu- og þjónustustörf að hluta til. Árið 2023 lauk ég stúdentsprófi frá félagsfræðilínu Framhaldsskólans Í Vestmannaeyjum.
Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hef áður setið í stjórn Eyverja.
Af hverju Sjálfstæðisflokkurinn? Ég hef alla tíð verið skoðana sterk og áttaði mig nokkuð snemma á því að skoðanir mínar eru til hægri og stefna Sjálfstæðisflokksins höfðar til mín. Þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn alla tíð sýnt það í verki að skoðanir ungs fólks skiptia þar máli.
Brýnustu verkefni: Að fá vatnslögnina samþykkta sem almannavarnamál og framfarir í samgöngum eru mjög mikilvæg verkefni.
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Að við beitum áhrifum okkar til að ýta á eftir úrbótum í Landeyjahöfn þannig að samgöngur milli lands og Eyja verði öruggari. Þá þarf að huga vel að allri grunnþjónustu við íbúa í Vestmannaeyjum.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Framtíð Vestmannaeyja er heldur betur björt! Hér mikil aukning atvinnutækifæra sem gefur ungu og menntuðu fólki tækifæri á að setjast að í Vestmannaeyjum. Öflugt atvinnulíf er grunnur þess að fólki fjölgi í Vestmannaeyjum.
Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins: Ég er ung og kem með sjónarmið ungs fólks inn í sterkan hóp frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins. Það er mikilvægt að skoðanir ungs fólks hafi áhrif í ákvarðanatöku í málefnum bæjarins og ég tel að mín rödd inni í hópi þess reynslumikla fólks sem er á okkar lista sé mikilvæg og muni hafa góð áhrif.
Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að við viðhöldum því góða sem hefur nú þegar verið gert og bætum það sem betur má fara. Góðar samgöngur og góð grunnþjónustan er lykilatriði til þess að fólk flytji aftur heim eftir nám og festi rætur sínar hér.