Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Jón Þór frá Miðflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn: Jón Þór Guðjónsson

Aldur: 32 ára

Fjölskylda: Ég á þrjú börn, Tinnu Mjöll 5 ára, Andreu Dögg 2 ára og einn lítinn peyja sem er nýkominn í heiminn með henni Nönnu Berglindi Davíðsdóttur. Móðir mín er Jóhanna Kristín dóttir Fríðu Dóru og Gulla Axels og faðir minn er Guðjón Örn sonur Ernu og Gauja á Hólatungu.

Menntun og störf: Með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og viðskiptafræði sem aukagrein. Starfa í dag sem tölvunarfræðingur hjá Vestmannaeyjabæ og rek Hopp Vestmannaeyjar. Áður hef ég starfað í upplýsingatækni og forritun og hef jafnframt reynslu úr fjölbreyttum störfum, meðal annars í sölu, þjónustu og verklegum störfum. Ég er formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og sat í þjóðhátíðarnefnd síðustu tvö árin.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Var í 11. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í síðustu sveitastjórnarkosningum og var varamaður í fræðsluráði. Að öðru leyti kem ég ferskur inn í þetta.

Af hverju Miðflokkurinn: Miðflokkurinn talar af heiðarleika, skynsemi og yfirvegun. Hann segir hlutina bara eins og þeir eru og skefur ekkert af þeim. Flokkurinn talar sérstaklega fyrir minni sveitarfélögum eins og Vestmannaeyjum og leggur áherslu á að byggja upp landið í heild, styðja við atvinnulíf og einstaklinga. Það er mikilvægt að átta sig á því að það vilja og geta ekki allir búið á höfuðborgarsvæðinu og þar finnst mér Miðflokkurinn tala skýrt.

Brýnustu verkefni: Brýnustu verkefnin eru að tryggja áreiðanlegar samgöngur og öfluga grunninnviði. Það þýðir að fá Landeyjahöfn í það horf sem okkur var upphaflega lofað, heilsárshöfn. Einnig þurfum við að bæta innviðina hér og setja fram skýra framtíðarsýn.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Skipulags-, samgöngu- og umhverfismál, rekstur og fjármál.

Í skipulagsmálum vil ég sjá framþróun í stórum verkefnum eins og stórskipahöfn, uppbyggingu íþróttamannvirkja og atvinnuhúsnæðis.

Í umhverfismálum vil ég bæta ásýnd bæjarins, laga götur, gangstéttar og hjólastíga og fegra helstu svæði.

Í rekstri og fjármálum legg ég áherslu á ábyrgð og góða nýtingu fjármuna.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Eins og menn hafa nefnt hérna í greinum, litla Mónakó. Við erum farin að sjá það gerast með stórum verkefnum eins og Laxey og þeirri nýsköpun sem hefur sprottið í kringum það, ég er sannfærður um að það sé bara byrjunin. Ferðaþjónustan er annað dæmi, í dag náum við aðeins brot af þeim ferðamönnum sem keyra suðurlandið. Fyrir mér snýst framtíðarsýn um að hugsa stærra, nýta sérstöðu Eyjanna og byggja upp samfélag sem er bæði eftirsóknarvert fyrir bæði íbúa og ný aðlaðandi tækifæri.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Miðflokksins: Tel mig koma inn með raunsæja nálgun og sterkan vilja til að láta hlutina ganga upp. Ég er óhræddur við að taka umræðuna, hlusta á fólk og vinna að lausnum sem skila raunverulegum árangri. Mér finnst mikilvægt að forgangsraða skýrt og klára það sem við byrjum á.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Það sem skiptir mig mestu máli er að börnin mín fái að alast upp í góðu og sterku samfélagi sem gefur þeim tækifæri til framtíðar. Vestmannaeyjar eru einstakur staður til að alast upp á, í nánd við náttúruna og finnst mér mikilvægt að við höldum í menningararfinn sem við höfum og byggjum ofan á hann.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.