Ég get ekki sætt mig við þessa viðbyggingu sem er að fara af stað við Íþróttamiðstöðina. Sem fyrrverandi starfsmaður í þessu húsi þá get ég vottað að starfsfólkið þarna er á hlaupum um allt hús því nú þegar er það ekki vel skipulagt. Með því að bæta við klefum á þessa hlið er búið að bæta við nokkrum kílómetrum í viðbót við hlaupin og nýr gangur kominn sem starfsmenn hafa hefur enga yfirsýn yfir.
Ég hef enn ekki hitt þann starfmann, iðkenda, kennara eða þjálfara sem er ánægður með þessa viðbyggingu. Af hverju má ekki hlusta á fólkið sem er að nota húsið? Starfsmenn? Hagsmunaaðila?
Hver ræður þessu og af hverju þegar ljóst er að það er ekki ánægja með þetta er ekki stoppað og málið skoðað aðeins betur? Það er verið að henda milljörðum í viðbyggingu sem er það illa skipulögð að það var ekki einu sinni reiknað með flóttaleið út úr henni. Ný flóttaleið er núna inni geymslunni í nýja salnum. Sú geymsla er stærsta geymslan í húsinu og hefur hún alltaf verið troðfull eins og allar aðrar geymslur sem eru í húsinu. Væntanlega má þá ekki geyma áhöldin þar inni lengur, hvar á þá að geyma þau núna?
Annað sem gleymdist er aðstaða fyrir sjoppu sem hefur verið notuð þegar viðburðir eru haldnir í húsinu. Gamla sjoppan var rifin og þar sett kaffistofa, ekki var gert ráð fyrir sjoppu í viðbyggingunni svo ég spyr hvar á hún þá að vera? Eiga íþróttafélögin kannski að sleppa þeim fjáröflunum sem þau hafa verið með í sjoppunni hér eftir? Hefði kannski verið nær að ræða við fólkið sem er að nota húsið og fá innsýn í það sem þarna fer fram?
Það gerði það enginn, bara teiknað og einhver sem greinilega ræður miklu segir go og þá er bara go og málið útrætt.
Ekki nóg með það þá er þessi nýja viðbygging á tveimur hæðum. Klefar á neðri hæðinni og já svo bara eitthvað á efri hæðinni sem ekki hefur enn verið ákveðið hvað á að vera.. í alvöru? Erum við í alvöru að byggja hér viðbyggingu sem kostar ógeðslega mikið og vitum ekki alveg hvað við ætlum að gera með hana.
Svo stendur oddviti minnihlutans uppi á sviði í Höllinni og segir okkur að það sé plan… já okey hvar er þetta svo kallaða plan? Af hverju hefur enginn séð þetta plan? Hvað nær þetta plan langt ef það ekki enn alveg búið að ákveða hvað á að vera þarna á efri hæðinni? Var þetta plan unnið í samstafi við einhvern í bænum eða var það þessi sami sem greinilega ræður miklu sem bjó til þetta plan? Getum við kannski fengið að sjá þetta plan og kannski fengið að koma með athugasemdir sem mögulega væri hægt að hlusta á ef það er eitthvað sem betur mætti fara?
Þetta blessaða plan er virðist vera svo leynilegt að meira að segja frambjóðandi Sjálftæðisflokksins skrifar um það grein að það þurfi að fá fleira fólk að borðinu og búa til framtíðarsýn fyrir húsið, veit hann ekki að oddviitinn er með plan?
Stoppið þetta kjaftæði og farið að hlusta á fólkið í bænum. Er mikilvægara að geta sagt ég byggði þetta og þetta og ég gerði þetta og þetta en að hafa skýra framtíðarsýn og gera hlutina vel í góðu samráði við bæjarbúa?
Linda Rós Sigurðardóttir
Höfundur skipar 7. sæti á lista Miðflokksins í Vestmannaeyjum.