Á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um þátttöku fyrirtækisins á stærstu sjávarútvegssýningu heims, Seafood Expo Global 2026, sem haldin var í Barcelona dagana 21.–23. apríl. Þar kemur fram að mikilvæg tengsl hafi verið styrkt og innsýn fengin í krefjandi en spennandi stöðu markaða.
Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar tók þátt í sýningunni, sem er sú stærsta til þessa, með yfir 2.300 sýnendur frá um 86 löndum og tugþúsundir gesta sem koma að sjávarútvegi víðs vegar að úr heiminum.
Daginn áður en sýningin hófst kom hópur Vinnslustöðvarinnar saman ásamt fulltrúum dótturfélaga á sölu- og markaðsfundi í Barcelona.
„Þessi fundur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur. Þar náum við að stilla saman strengina, fara yfir stöðuna á mörkuðum og tryggja að við séum með skýr og samræmd skilaboð inn í sýninguna,“ segir Björn Matthíasson, rektrarstjóri hjá VSV Seafood Iceland.
Aðsókn á sýninguna var mjög góð og viðskiptaumhverfið líflegt alla dagana. Þar komu saman framleiðendur, kaupendur og tæknifyrirtæki, auk fjölmargra annarra aðila sem tengjast greininni.
„Þetta er vettvangur þar sem við hittum okkar helstu viðskiptavini og samstarfsaðila. Það skiptir miklu máli að vera sýnileg þar sem markaðurinn mótast og eiga bein samtöl við fólk,“ segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfisks hjá Vinnslustöðinni.
Eitt það sem var efst á baugi á sýningunni voru markaðsaðstæður – sérstaklega hátt hráefnisverð og takmarkað framboð á villtum botnfiski.
„Við finnum fyrir sterkri eftirspurn, en á sama tíma er framboð þröngt. Það skapar ákveðna spennu á mörkuðum og krefst þess að fyrirtæki hugsi enn meira í virðisaukningu og nýtingu,“ segir Björn.
Verð á þorski og skyldum tegundum hefur verið hátt og sveiflur á mörkuðum eru áfram til staðar, sem hefur áhrif á bæði framleiðendur og viðskiptavini.
Þrátt fyrir áskoranir í framboði var stemningin jákvæð og viðskipti lífleg. Áhersla var á langtímasamninga, stöðugleika í framboði og aukna verðmætasköpun.
„Við sjáum að viðskiptavinir leggja sífellt meiri áherslu á gæði, áreiðanleika og samstarf til lengri tíma. Þar teljum við Vinnslustöðina vel staðsetta,“ segir Sverrir.
Þátttaka í alþjóðlegum sýningum eins og Seafood Expo Global er lykilþáttur í starfsemi Vinnslustöðvarinnar.
„Þetta snýst ekki bara um að selja vörur heldur líka um að hlusta, læra og skilja hvert markaðurinn er að fara. Þess vegna er svo mikilvægt að vera á staðnum,“ segir Björn að lokum.