Árleg vorhátíð Landakirkju fer fram á morgun, sunnudaginn, þann 26. apríl kl. 11:00. Hátíðin er uppskeruhátíð vetrarstarfs kirkjunnar, segir í frétt á vef Landakirkju.
Um er að ræða fjölskyldumessu þar sem fram koma Kór Landakirkju og Sunday School Party Band koma fram og leiða sönginn sem verður sunnudagaskólalög í bland við létta sálma. Að lokinni messunni verður boðið upp á grillaðar pylsur og leiki fyrir krakkana.
Allir hjartanlega velkomnir, segir að endingu ú fréttinni.