Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Ólíklegt þykir að höfnin opni um helgina.

Landeyjahöfn er enn lokuð vegna ófullnægjandi dýpis í höfninni og útlit er fyrir að lokunin standi áfram næstu daga.

Dýpkunarskipið Álfsnes var við störf frá klukkan eitt í nótt til sex í morgun, en þurfti að hætta vinnu þegar alda fór hækkandi. Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi ölduhæð sem kemur í veg fyrir frekari dýpkunarvinnu að svo stöddu.

Álfsnesið heldur nú til Þorlákshafnar og er gert ráð fyrir að hægt verði að hefja dýpkun á ný síðdegis á fimmtudag eða á föstudag, fari aðstæður batnandi.

Ljóst er að tíminn fram að helgi er of skammur til að ljúka nauðsynlegri dýpkun. Því er nánast útilokað að Landeyjahöfn verði opnuð um helgina.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.