Búið er að setja af stað undirskriftarlista vegna stöðunnar í Landeyjahöfn þar sem krafist er tafarlausra úrbóta.
Hægt er að skrifa undir hér
Ófremdarástandið sem nú ríkir í Landeyjahöfn er orðið alvarlegt áhyggjuefni fyrir bæði íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Orsökin er ónógt dýpi í höfninni, sem hefur leitt til þess að Herjólfur getur ekki siglt tíl og frá Landeyjahöfn. Þetta hefur í för með sér ófyrirsjáanleika í samgöngum sem bitnar beint á daglegu lífi fólks.
Fyrir íbúa Vestmannaeyja eru reglulegar og áreiðanlegar samgöngur lífsnauðsyn. Þegar siglingar raskast þurfa íbúar að fara í lengri siglingar til og frá Þorlákshöfn. Slíkt ferðalag veldur töfum og auknum kostnaði.
Efnahagslegu áhrifin eru ekki síður alvarleg. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum, t.d. í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, reiða sig á skilvirkar flutningsleiðir. Þegar siglingar raskast tefjast vöruflutningar, sem getur leitt til taps á tekjum, aukins rekstrarkostnaðar og skerts samkeppnishæfis.
Því krefjumst við þess að Ráðamenn landsins bregðist við ástandinu strax og fái dæluskip til landsins sem ræður við verkefnið!