ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Dregið var í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag. Kvennalið ÍBV var í pottinum og þurfa þær að fara í langt ferðalag því þær drógust gegn Tindastól, á Sauðárkróki. 16-liða úrslitin verða leikin föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí. Tíu lið í 16- liða úrslitunum eru úr Bestu deildinni, fimm úr Lengjudeildinni og eitt úr 2. deild.

Kvennalið ÍBV fór alla leið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum í fyrra þar sem þær töpuðu naumlega gegn Breiðablik 3-2.

16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna:

Valur – Grindavík

Selfoss – FH

Tindastóll – ÍBV

Þór/KA – Stjarnan

Keflavík – Víkingur Reykjavík

Fram – ÍA

Þróttur Reykjavík – Breiðablik

Fylkir – FHL

 

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.